Bandaríska rokksveitin Queens of the Stone Age heldur tónleika í Höllinni þann 24. október næstkomandi, en um er að ræða sérstaka tónleika sem settir eru upp eingöngu fyrir Ísland. Þetta eru stór tíðindi í sjálfu sér enda sveitin lengi þótt ein merkilegasta rokksveit samtímans og ekki á hverjum degi sem listamenn af slíkri stærðargráðu koma til landsins.
Samkvæmt tilkynningu frá Senu Live hefur sveitin lengi haft áhuga á að koma fram hér á landi, en það hefur ekki náð að ganga síðan þeir komu hingað síðast fyrir rúmum 20 árum. Þá tróðu þeir upp ásamt Mínus og Foo Fighters í Egilshöll. Í þetta sinn er ekki um að ræða hluta af stærri Evróputúr heldur sérferð sem hljómsveitin ákvað að ráðast í sérstaklega fyrir íslenska aðdáendur.
Sveitin valdi sjálf íslenska upphitunarsveit
Í þetta sinn verður það íslenska sveitin Virgin Orchestra sem sér um upphitun, en samkvæmt Senu var hún sérstaklega valin af Queens of the Stone Age sjálfum.
Virgin Orchestra hefur vakið athygli á síðustu árum fyrir kraftmikinn hljóm sem sækir áhrif í post-pönk, dreampop, raftónlist og hávaðarokk. Sveitin hefur verið á mikilli siglingu bæði hérlendis og erlendis, meðal annars eftir útgáfu plötunnar Fragments árið 2023 og EP-plötunnar Let It Burn árið 2025.
Forsala hefst á fimmtudag
Forsala fyrir tónleikana hefst 25. júní klukkan 11:00 og almenn sala daginn eftir á sama tíma. Miðasalan fer fram á Tix.is
Miðaverð spannar frá tæplega 13 þúsund krónum upp í tæpar 50 þúsund krónur, þar sem dýrustu miðarnir fela í sér ýmis fríðindi.
Sveitin, sem skipuð er meðal annars Josh Homme, Troy Van Leeuwen og Jon Theodore, hefur á síðustu árum verið lofuð fyrir öfluga sviðsframkomu og gagnrýnendur hafa sagt hana vera ná nýjum hæðum. Blaðamaður Nútímans getur reyndar vottað að Queens of the Stone Age hefur aldrei slegið slöku við og hefur í reynd verið besta tónleikasveit veraldar um áratugaskeið.
Að sögn skipuleggjenda er því von á einu stærsta rokktónleikakvöldi ársins á Íslandi í haust og það er engin ástæða til að draga þau orð í efa. Þetta er eitthvað sem sannir rokkunnendur láta alls ekki framhjá sér fara.