Í hádegisfréttum ræðum við við Sigurð G. Guðjónsson lögmann fjölskyldunnar.
Þá tökum við stöðuna á þingmálunum sem eftir eru uns Alþingi fer í sumarfrí. Nú er stefnt að því að hafa síðasta þingfundinn á föstudaginn kemur.
Einnig heyrum við í hvalfriðunarsinnum sem segjast ekki styðja baráttuaðferðir Pauls Watsons en lýsir miklum vonnbrigðum með að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar.
Í íþróttapakka dagsins er það svo Besta deildin í fótbolta og golfið en spennan eykst hjá Gunnlaugi Árna sem hefur leik á Opna bandaríska meistaramótinu á fimmtudaginn.