Óska eftir tilboðum í stórkostlegt einbýli við tennisvöll

Fallegt og reisulegt einbýlishús á tveimur hæðum hefur verið sett á sölu í Hlíðarhjalla 31 í suðurhlíðum Kópavogs. Eignin stendur innst í rólegum botnlanga á afar veðursælum stað og býður upp á glæsilegt útsýni yfir Kópavogsdalinn, til fjalla og sjávar.
Húsið er skráð 258,8 fermetrar að stærð, þar af er bílskúr 36,6 fermetrar. Um er að ræða steinsteypt hús sem byggt var árið 1990 og fullklárað að innan nokkrum árum síðar. Húsið er teiknað af arkitektinum Steingrímur Hauksson og þykir hönnun þess bæði vönduð og tímalaus.
Eignin hentar sérstaklega vel stórum fjölskyldum, en í húsinu eru fimm svefnherbergi og tvö baðherbergi. Mikil lofthæð er á efri hæð hússins sem gefur rýminu glæsilegt yfirbragð. Neðri hæðina er jafnframt hægt að nýta sem séríbúð með sérinngangi.
Lóðin er skjólsæl og snýr til suðurs. Þar er að finna timburverönd, heitan pott og stóran suðurgarð sem býður upp á góða aðstöðu til útivistar og samveru. Þá fylgir eigninni stórt hellulagt bílastæði með hitalögnum.
Tvær rúmgóðar svalir eru við húsið, þar af eru aðrar staðsettar ofan á bílskúrnum. Við hlið eignarinnar er tennisvöllur auk fallegs grasivaxins svæðis. Stutt er í vinsælar gönguleiðir í Kópavogsdal sem njóta mikilla vinsælda meðal útivistarfólks.
Óskað er eftir tilboðum í eignina.