Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir það sérstakt að Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, blandi Jóhannesi Nordal, föður sínum og fyrrverandi seðlabankastjóra, inn í umræðu um upptöku evru.
Þetta skrifar Salvör í færslu á facebook-síðu sinni í kvöld.
Þorsteinn skrifaði fyrr í dag grein á Eyjunni þar sem hann fjallar um skýrslu erlendra sérfræðinga um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem fjallað hefur verið um undanfarna daga.
Vísað í 35 ára gömul skrif
Í grein sinni segir Þorsteinn að það mikilvægasta sem komið hafi fram í skýrslunni hafi verið að kostnaður við krónuna sé meiri en ábatinn og að rökin fyrir nauðsyn sveigjanlegrar gengisstefnu séu veigaminni en andstæðingar upptöku evru halda fram.
Segir Þorsteinn í grein sinni að Jóhannes Nordal hafi áður komist að sams konar niðurstöðu og vísar til skrifa Jóhannesar frá upphafi tíunda áratugsins því til stuðnings. Vísar Þorsteinn einnig til þess að Jónas H. Haralz, hagfræðingur og fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, hefði verið sama sinnis.
Salvör segir það sérstakt að Þorsteinn blandi föður sínum inn í þessa umræðu, enda hafi hann margoft látið þá skoðun sína í ljós að hann teldi að Ísland ætti ekki að taka upp evru.
„Það er erfitt að segja hvaða skoðun Jóhannes, Jónas og aðrir hagfræðingar liðins tíma hefðu á nýrri skýrslu um gjaldmiðlana og nær til dagsins í dag, hvort þeir væru sammála greiningunni, eða niðurstöðunni, enda margt breyst á síðustu árum eða áratugum, bæði hér heima og í Evrópu,“ skrifar Salvör.
Telur Salvör það einnig skjóta skökku við að Þorsteinn vísi til skrifa Jóhannesar frá árinu 1991, átta árum áður en evran var tekin upp, sem röksemdafærslu fyrir upptöku evru í ástandi dagsins í dag.

