Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu - Vísir

Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu - Vísir

Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu - Vísir

Í skjölunum rakst hún á indverska nafnið sitt, Djebani, og setningu sem sat eftir: að hún hefði verið yfirgefin við fæðingu vegna félagslegra og efnahagslegra ástæðna.

Í dag er Sigrún sjálf tveggja barna móðir og segir móðurhlutverkið hafa opnað nýjar spurningar um eigin uppruna, sjálfsmynd og missi. Hún hefur nú tekið fyrstu skrefin í leit að uppruna sínum en veit ekki hvort sú leit leiði til svara eða nýrra spurninga.

Leit að sjálfsmynd

Sigrún fæddist árið 1987 og dvaldi fyrstu mánuði ævi sinnar á barnaheimili í Kolkata á Indlandi. Hún var sex mánaða gömul þegar hún var ættleidd til Íslands af foreldrum sínum, Brynjari Jóni Stefánssyni og Elínu Árnadóttur. Seinna ættleiddu þau einnig bróður hennar, sem er níu árum yngri en hún og fæddist líka á Indlandi.

Sigrún var skilin eftir fyrir utan barnaheimilið þegar hún var 22 daga gömul.Aðsend

„Þegar ég var yngri var ættleiðingin aldrei neitt leyndarmál. Mér var sagt frá þessu mjög snemma og ég vissi að upplýsingar um uppruna minn væru takmarkaðar. Mömmu og pabba var sagt þegar þau sóttu mig að ég hefði verið skilin eftir á tröppunum við barnaheimilið og að það væru líklega mjög fá eða jafnvel engin gögn til um mig. Ég ólst því alltaf upp við þá vitneskju að svörin yrðu kannski aldrei mörg,“ segir hún.

Þrátt fyrir það rifjar hún upp að það hafi stundum verið erfitt að finna sig sem barn.

„Ég man eftir að mér fannst erfitt að vera öðruvísi í útliti og með annan húðlit en flestir aðrir í skólanum. Mig langaði bara að passa inn og vera eins og hinir.“

Með árunum fór hún að velta meira fyrir sér sjálfsmyndinni.

„Ég held að ég hafi alltaf verið að leita að einhverju sem væri mitt eigið. Það er ekki fyrr en á síðustu árum sem ég fór að tengja það við ættleiðinguna og upprunann.“

Sigrún var aðeins tíu ára gömul þegar móðir hennar lést úr krabbameini.

Þegar hún  horfir til baka sér hún betur að það að missa móður sína, konuna sem ættleiddi hana og ól hana upp, hafi líklega verið stærra högg en hún áttaði sig á á þeim tíma.

„Þetta voru miklar breytingar fyrir tíu ára barn. Ég missti mömmu mína og stuttu síðar kynntist pabbi nýrri konu. Þá sameinuðust tvær fjölskyldur og lífið varð allt öðruvísi. Það var auðvitað ekkert óeðlilegt við það, en sem barn var erfitt að skilja allar þessar breytingar og finna sig í nýjum aðstæðum. Ég held að ég hafi lengi ekki skilið hvað þetta hafði mikil áhrif á mig. Ég hafði þegar þurft að byggja upp sjálfsmynd sem ættleitt barn og svo missti ég mömmu mína. Þá þurfti ég einhvern veginn aftur að finna hver ég væri.“

Hún var mjög náin föður sínum á yngri árum og þau áttu sterkt samband í gegnum hestamennsku.

„Ég var mikil pabbastelpa. Við vorum mikið saman í hestunum og hestamennskan varð stór hluti af mér. Þar fann ég kannski ákveðna sjálfsmynd. Ég var „dóttir Binna Stefáns“ og það gaf mér einhvern stað, eitthvað sem var mitt.“

Eftir móðurmissinn breyttist margt og Sigrún man að þá hafi ótal spurningar vaknað innra með henni.

„Ég man að það komu upp margar spurningar í höfðinu á mér, um hver ég væri, hvaðan ég kæmi og hvar ég ætti heima í þessu öllu saman. Ég held að þetta sé eitthvað sem ég hef þurft að vinna mig upp úr með árunum,“ segir hún.

Ég vann kannski aldrei almennilega úr þessum tilfinningum á þessum árum. Ég var dugleg að æfa og vann mjög mikið með námi og hélt mér upptekinni.
Sjálfsmyndarleit er rauður þráður í frásögn Sigrúnar.Vísir/Vilhelm

Móðurhlutverkið breytti miklu

Sigrún hefur starfað lengi við þjálfun, bæði í handbolta og CrossFit, auk þess að bjóða upp á næringarráðgjöf.

„Að hjálpa öðrum hefur alltaf átt vel við mig. Ég held að það komi að einhverju leyti frá því að ég er næm og hef mikinn áhuga á fólki. Þetta kemur frá hjartanu.“

Hún segir það þó hafa verið stærsta vendipunktinn þegar dóttir hennar kom í heiminn árið 2014.

„Það var ekki fyrr en ég varð sjálf móðir, og þurfti að bera ábyrgð á öðrum einstaklingi og vera til staðar, aðég  fór að vinna almennilega í sjálfri mér. Að eignast barn setur allt í nýtt samhengi. Þá finnur maður hvað tengsl og öryggi skipta miklu máli. Ég fór að hugsa meira um tengsl, uppruna og hvað mótar okkur sem manneskjur. Ég fann líka að ég þurfti að fara að vinna betur í sjálfri mér og skilja eigin sögu betur.

Mamma var jarðsett 18.október árið 1997 og dóttir mín fæddist svo 18.október árið 2014. Maðurinn minn missti móður sína einnig úr krabbameini. Hún hét Sigrún. Dóttir okkar heitir þess vegna Elena Rún því það vísar í þær báðar. Sonur okkar heitir síðan Elvar Elí, sem vísar bæði í mömmu og aðra mjög mikilvæga konu í lífi mínu, Elvu, sem kom inn í líf mitt sem frænka en hefur með tímanum orðið meira og einskonar mamma og amma barnanna minna.“

Púslin fóru að raðast saman

Lengi vel leit Sigrún ekki á æsku sína sem eitthvað óvenjulegt. Hún hafði verið ættleidd og lifði góðu lífi á Íslandi.

„Ég hef alltaf upplifað mig mjög heppna og verið þakklát fyrir lífið mitt. Á sama tíma hef ég áttað mig betur á því með árunum að ættleiðing hefur áhrif á sjálfsmynd og tilfinningar, jafnvel þó að maður tali ekki alltaf um það.“

Hún segir að lestur rannsókna og frásagna annarra ættleiddra hafi hjálpað henni að skilja eigin upplifun betur.

„Ég fór að sjá ákveðin mynstur og tengja hluti saman. Það hjálpaði mér að skilja sjálfa mig betur.“

Nafnið Djebani

Fyrir tæpu ári síðan fékk Sigrún afhend ættleiðingarskjölin sín.

„Ég setti þau fyrst bara inn í skáp og treysti mér ekki strax til að skoða þau. Svo kom einn dagur þar sem ég fann bara að nú væri ég tilbúin.“

Skjölin innihéldu ekki mikið af nýjum upplýsingum en tilfinningarnar sem spruttu upp við að lesa þau komu henni á óvart.

„Þessi skjöl segja mér í rauninni ekkert mikið nýtt, en það var mjög þungt að lesa þau. Ég vissi alltaf að ég hefði verið skilin eftir, en það var öðruvísi að sjá það á blaði. Að sjá að það væri merkt við að ég væri „approximately“ 22 daga gömul. Alls staðar stendur „approximately“ og meira að segja fæðingardagurinn minn er skráður sirka.“

Í skjölunum stendur meðal annars að hún hefði verið yfirgefin við fæðingu vegna „félagslegra og efnahagslegra aðstæðna.“

„Það var mjög sterkt að lesa þetta um sjálfa sig, þótt ég hafi alltaf vitað að upplýsingarnar væru takmarkaðar.“

Eitt af því sem hafði mest áhrif á hana var að sjá indverska nafnið sitt aftur.

„Ég hafði alltaf vitað nafnið mitt, Djebani, en fór núna að skoða betur merkingu þess. Það hreyfði mjög við mér og vakti alls konar tilfinningar.“

Skjölin eru handskrifuð, enda hátt í 40 ára gömul.Vísir/Vilhelm

Ótal spurningar vakna

Eftir að hafa lesið skjölin fann Sigrún að eitthvað hafði breyst.

Það er eins og eitthvað hafi opnast innra með mér. Nú finn ég meiri forvitni um upprunann minn en ég hef áður fundið.

Hún segir hugsanirnar oft fara af stað þegar hún horfir á eigin börn.

„Maður fer ósjálfrátt að velta fyrir sér hverjum maður líkist og hvaðan ákveðnir eiginleikar koma. Dóttir mín er sérstaklega lík mér að mati margra og þá vakna alls konar hugsanir. Ætli ég sé lík móður minni? Á ég systkini sem líkjast mér? Svona spurningar koma oft upp.“

Til að reyna að komast nær einhverjum svörum hefur hún meðal annars pantað DNA-próf.

„Maður veit aldrei hvað getur komið út úr því. Fólk um allan heim er að skrá sig í svona gagnagrunna og kannski birtist eitthvað einhvern daginn.“

Fékk aðstoð frá ChatGPT

Sigrún ákvað einnig að leita upplýsinga um barnaheimilið þar sem hún dvaldi fyrst eftir fæðingu.

„Ég setti myndir af skjölunum inn í ChatGPT og spurði hvort það væri hægt að finna upplýsingar um barnaheimilið. Þar fékk ég netfang og upplýsingar um að það væri enn starfandi.“

Hún sendi í kjölfarið tölvupóst á stofnunina.

„Ég spurði hvort einhver gömul gögn væru enn til frá þessum tíma og hvort möguleiki væri á að fá frekari upplýsingar um málið mitt.“

Skömmu síðar fékk hún svar.

„Þau sögðust vilja hjálpa mér eins og þau gætu og skildu forvitnina mína. Nú bíð ég bara og sé hvort eitthvað finnist.“

Tók af skarið

Nýlega ákvað Sigrún einnig að opna sig opinberlega um reynslu sína í færslu á Instagram.

„Ég ætlaði í fyrstu ekkert að birta neitt. Ég var bara að skrifa niður hugsanir fyrir sjálfa mig, en svo fann ég að ég væri tilbúin að tala um þetta.“

Viðbrögðin komu henni á óvart.

„Ég fékk ótrúlega falleg skilaboð og mikinn stuðning. Það var mjög gott að finna að fólk tengdi við þetta og skildi það sem ég var að upplifa.“

Sigrún er á byrjunarreit í leitinni.Vísir/Vilhelm

Full af þakklæti

Saga Sigrúnar er enn með opnum enda.

Hún veit ekki hvort DNA-prófið muni leiða eitthvað í ljós eða hvort fleiri upplýsingar finnist í gömlum skjölum frá Indlandi. Hún veit ekki hvort hún muni nokkurn tímann finna blóðfjölskyldu sína.

„Ég veit ekkert hvert þessi leit leiðir mig. Kannski finn ég eitthvað og kannski ekki. Maður þarf líka að passa hjartað sitt í þessu.“

Þrátt fyrir allar spurningarnar segir hún þó eina tilfinningu standa sterkasta eftir.

„Ég finn fyrst og fremst fyrir miklu þakklæti. Sama hvaða DNA ég hef eða hvaðan ég kem, þá hef ég átt gott líf og fengið ótrúlega mikið. Forvitnin og spurningarnar eru til staðar, en þakklætið er sterkara en allt annað.“

#fann #fyrsta #opnaði #sinn #ættleiðingarskjölin


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262880994d/opnadi-aettleidingarskjolin-i-fyrsta-sinn-og-fann-setningu-sem-breytti-ollu

📰 Aðrar fréttir

Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Reglur um dvalar­leyfi þrengdar og filipps­eyskar au-pair úr sögunni - Vísir
Þetta er meðal þess sem kemur fram í drögum að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum. Þar eru lagðar fram breytingar sem ætlað er að veita þolendu...
Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ódýrt vímuefni ryður sér til rúms – „Ein lítil mistök geta endað í dái eða dauða“
Sérfræðingar í Bretlandi hafa áhyggjur af ört vaxandi notkun smjörsýru, eða GHB, meðal ungs fólks. Efnið, sem áður var einkum tengt ákveðnum hópum í n...
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skora á stjórnvöld að falla frá áformum um hækkun virðisaukaskatts á baðlón
Sveitarstjórn Hrunamannahrepps í uppsveitum Árnessýslu mótmælir fyrirhuguðum hækkunum stjórnvalda á virðisaukaskatti á aðgang að baðlónum harðlega. Hú...
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Leggur til að þing­menn verði 85 í stað 63 - Vísir
Starfshópur á vegum dómsmálaráðuneytisins lagði nýlega til breytingar á kjördæmaskipan landsins en að fjöldi þingmanna yrði sá sami. Samkvæmt tillögum...
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
📅 01.10.2026 👁️ 1
Réttarhöld framundan yfir manni sem ákærður er fyrir að nauðga konu og hrinda henni fram af stigapalli
Maður er ákærður fyrir nauðgun, frelsissviptingu og sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu. Atvik málsins urðu frá laugardegi til sunnudags ei...
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
📅 01.10.2026 👁️ 1
What's gone wrong at Nike? How the world's sportswear giant lost its mojo
Several self-inflicted mistakes have cost the biggest sportswear brand on the planet in recent years.
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skref í rétta átt en óvíst hvort kjarasamningar haldi
Formenn Samtaka atvinnulífsins og ASÍ eru sammála um að skilaboð forsætisráðherra séu skref í rétta átt og hjálpi til við samningaborðið. Forsætisráðh...
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
📅 01.10.2026 👁️ 1
Boðar breytingu á veitingu dvalarleyfa
Til stendur að hætta útgáfu dvalarleyfa til fólks utan EES sem kemur til Íslands í vistráðningu, það er sem au-pair. Markmiðið er að koma í veg fyrir ...
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
📅 01.10.2026 👁️ 1
Celebrity Traitors: Chaos, coffins and ‘Claudiapatra’ steal the show
There is paranoia, confusion and a battle to survive among the celebrities as they fight for survival.
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
Andleg heilsa er eitt af stærstu umræðuefnum unglingsáranna og mikilvægt að tala um erfiðu hlutina. Þetta segja ungmenni sem tóku þátt í setningu Forv...
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Svara loks sögusögnum um umboðsmanninn Magnús: „Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu“
Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október, en í nýjum ...
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hvað veistu um... Mean Girls? - Vísir
Myndin fjallar um stúlku, sem leikin er af Lindsay Lohan, sem byrjar í bandarískum menntaskóla eftir að hafa alist upp á erlendri grundu. Í skólanum k...
Hörður hættir vegna ágreinings
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hörður hættir vegna ágreinings
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti. RÚV greinir frá þessu. H...
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
📅 01.10.2026 👁️ 1
Margt eftir og stöðugt verið að uppfæra til að tryggja búsetu
Mikil vinna var lögð í fyrstu niðurstöður endurskoðaðs áhættumats í Grindavík sem birt var í síðustu viku. Skarphéðinn Berg Steinarsson verkefnisstjór...
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni - Vísir
Nú hefur hefur dómur Landsréttar í málinu verið birtur en greint var frá því á Vísi í dag að Landsréttur hefði dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingó...
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ágreiningur um stjórnarhætti ástæða þess að Hörður hættir
Ástæða þess að Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar er ágreiningur um stjórnarhætti.Hörður greindi frá ákvörð...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk við Fairford - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Írani grunaður um að skipu­leggja hryðju­verk - Vísir
Þetta hefur breska ríkisútvarpið eftir hryðjuverkadeild lögreglunnar á Bretlandi en þar segir að 27 ára karlmaður sem sé bæði með breskt og íranskt rí...
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
📅 01.10.2026 👁️ 1
Össur segir Hannes stunda skipulagt einelti að hætti MAGA: „Þetta er hreint rugl“
Össur Skarphéðinsson, fyrrum ráðherra, segir Hannes Hólmstein Gissurarson, prófessor emeritus, vera forsprakka að einelti gagnvart Þorgerði Katrínu Gu...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna í heimsókn til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til Íslands og kemur til ...
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi
Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skóla...
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
📅 01.10.2026 👁️ 1
Burnham warned Rosebank oil field could breach West Bank sanctions
Campaigners and Green Party leader Zack Polanski raise concerns about Rosebank's ties to an Israeli firm.
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Samtalið mikilvægt á umbrotatímum
Það eru nú einhverjir mestu umbrotatímar í seinni tíð og því tímabært að hefja samtal um hvernig samfélagi við viljum búa í. Þetta segir forseti Íslan...
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
📅 01.10.2026 👁️ 1
Putin warns West that Russia is ready to use every weapon to protect Kaliningrad
Vladimir Putin insists Moscow is "not threatening anyone" and merely responding to statements by Western leaders.
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Marco Rubio á leið til Ís­lands - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu en þar er haft eftir Þorgerði að það sé mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið „sem...
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
📅 01.10.2026 👁️ 1
Pálína sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð
Landsréttur hefur dæmt ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur, sem birtust sem athugasemd á Facebook við deilingu á frétt af Vísir.is, 22. mars 2022, dauð...
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“ - Vísir
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar greindi frá því í færslu í morgun að útboð Kópavogsbæjar vegna byggingar stúku við Kórinn hefði verið dæm...
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
📅 01.10.2026 👁️ 1
Starfsfólk dýraathvarfs í uppnámi – Maður krafðist þess að fá að hafa samfarir við dýrin
Truflaður maður mætti í dýraathvarf í Sviss og krafðist þess að fá geit til þess að borða. Þegar hann fékk neitun vildi hann fá næði til þess að eðlas...
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skipa hóp sem fær umboð til að semja um byggingu Tækniskóla í Reykjavík
Borgarráð hefur samþykkt að skipa viðræðuhóp sem fær umboð til að semja við Tækniskólann um uppbyggingu nýs skóla í Reykjavík.Í fundargerð borgarráðs ...
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ekki búið að finna nýjan lög­reglu­stjóra hátt í hálfu ári síðar - Vísir
Lítil hreyfing var á ráðningarferlinu í sumar en nú er búið að skipa hæfnisnefnd sem mun meta hæfi þeirra sex einstaklinga sem sóttu um stöðuna í júní...
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
📅 01.10.2026 👁️ 1
Konu gert að greiða Ingó miskabætur vegna ærumeiðandi ummæla
Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og gert konu að greiða Ingólfi Þórarinssyni, betur þekktum sem Ingó Veðurguð, miskabætur vegna ummæla sem ...
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners to release strategic fuel reserves if needed, BBC understands
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
📅 01.10.2026 👁️ 1
UK in talks with EU partners over fuel reserves after Trump diesel threat
President Donald Trump has threatened to ban diesel exports in a bid to ease prices in the US.
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
📅 01.10.2026 👁️ 1
Ungt fólk kalli eftir samtali og stuðningi fullorðinna
Samtal og samkennd er yfirskrift forvarnardagsins sem er í dag. Í ár er sjónum beint sérstaklega að nemendum í 9. bekk grunnskóla og öllum nemendum í ...
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
📅 01.10.2026 👁️ 1
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. ...
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Al­var­lega slasaður eftir fall af svölum - Vísir
Rúv greindi fyrst frá en Ari Magnús Benediktsson, framkvæmdastjóri Nestaks, segir við Vísi að starfmaðurinn hafi fallið við vinnu á þriðjudagsmorgni o...
28 sagt upp hjá Klettabæ
📅 01.10.2026 👁️ 1
28 sagt upp hjá Klettabæ
28 starfsmönnum Klettabæjar var sagt upp störfum í vikunni. Jóhanna M. Fleckenstein, framkvæmdastjóri og annar af tveimur eigendum Klettabæjar, segir ...
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Örn Bárður Jónsson skrifar: Á hvaða leið er heimurinn?
Merkilegt hefur verið að upplifa viðbrögð við grein sem ég ritaði nýlega og birti í DV og tel mjög upplýsandi um áhrif íslam í heiminum. Greinin ber y...
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
📅 01.10.2026 👁️ 1
Aftaka klúðrast en hvað gerist svo? – Örlög nokkurra dauðadæmdra fanga sem lifðu af aftöku sína
Margir eru í losti eftir að hafa lesið um misheppnaða aftöku morðingjans Christu Pike í morgun. Eftir tvo skammta af banvænum lyfjum sló hjartað enn þ...
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
📅 01.10.2026 👁️ 1
Hótaði að senda menn á eftir stjúpsyni sínum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að maður sem ákærður er fyrir brot í nánu sambandi víki út dómsal á meðan brotaþoli ber vi...
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
📅 01.10.2026 👁️ 1
Stephanie Hegarty: What happened in the failed execution of Christa Pike?
The BBC's Stephanie Hegarty looks at why two attempts to execute the US convicted murderer by lethal injection failed.
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
📅 01.10.2026 👁️ 1
Dual UK-Iranian national arrested over RAF Fairford incident
The 27-year-old man was arrested in Westminster, London, counter-terror police say.
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Á­rekstur við Hamra­borg - Vísir
Þetta staðfestir Friðrik Theódórsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Einn sjúkrabíll var sendur á vettvang og tækjabíll en var bei...
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Engin að­stoð við próf­töku og litaðar nú­meraplötur - Vísir
Reglugerðarbreytingin er sögð liður í heildarendurskoðun á lagaumhverfi fyrir leigubifreiðaþjónustu samkvæmt tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Markmi...
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
📅 01.10.2026 👁️ 1
Slasaðist alvarlega í vinnuslysi í Neskaupstað
Starfsmaður verktakafyrirtækisins Nestaks slasaðist alvarlega í vinnuslysi á þriðjudag. Starfsmaðurinn, sem er karl á fertugsaldri, var fluttur á sjúk...
Skriðuviðvörun til morguns
📅 01.10.2026 👁️ 1
Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni...
Fires break out at French schools as students protest nationwide
📅 01.10.2026 👁️ 1
Fires break out at French schools as students protest nationwide
The French government holds a crisis meeting as demonstrations grow and become violent in places.
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 1
Norð­menn gerðu símaat í Tré­virki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ - Vísir
Útvarpsmenn í þættinum Sentralbordet på NRK á norksa ríkisútvarpinu hringja reglulega símaöt innanlands og til útlanda og hringdu nýverið símaat í ísl...
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Fjölmiðlar uppskera vantraustið sem þeir sá sjálfir
Rétt eins og á Íslandi eru blaðamenn ekki hlutlausir í Noregi. Sama gerist á Íslandi og það þarf ekki að leita langt til að finna slíka blaðamenn og f...
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
📅 01.10.2026 👁️ 0
Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata - Vísir
Kosið verður þann 3. nóvember en nú þegar hafa að minnsta kosti 700 þúsund kosið í allavega þrjátíu ríkjum. Gögn segja svipaða sögu og kannanir hafa g...