Öll þau hundrað egg sem fundust í farangri evrópsks pars um borð í Norrænu fyrr í vikunni eru ónýt að sögn Hálfdáns Helga Helgasonar, fuglavistfræðings hjá Náttúrustofu Austurlands og Náttúrufræðistofnun.
„Þau eru bara orðin köld, það er ekkert hægt að halda lífi í svona,“ segir Hálfdán í samtali við mbl.is.
„Það er hellings vinna og með tegundir eins og mófuglana, langvíurnar, lundana og rjúpurnar þá er það bara vonlaust.“
Aðstoðaði lögreglu við greiningu
Hálfdán Helgi aðstoðaði lögregluna á Austurlandi við rannsókn málsins.
„Þau höfðu samband við mig og óskuðu eftir að fá greiningu á eggjunum. Það sem menn hafa áhyggjur af, sérstaklega þegar það koma svona mál upp, er að það séu egg sjaldgæfra tegunda í svona sendingum. Þá er sérstaklega verið að horfa eftir fálka,“ segir hann.
Eggin sem fundust í fórum ferðamannanna voru meðal annars rjúpnaegg, heiðlóu- og spóaegg, æðar- og lómsegg, hrossagauks-, ritu- og andaregg. Þá voru fimm lifandi hrossagauksungar í fórum þeirra.
„Það var reynt að taka hrossagauksungana sem voru þá þegar klaktir og koma þeim undir hrossagaukspör á Seyðisfirði, en annars er þetta töluvert flókið mál að halda lífi í svona ungum,“ segir Hálfdán.
Málið á sér fordæmi
Hann segir parið líklega hafa verið fuglasafnara. Svipuð mál hafi áður komið upp hér á landi.
„Það eru svona fuglasafnarar sem við vitum af sem eru að halda alls konar tegundir og við vitum það að síðustu ár hefur lundi verið mjög vinsæll í svoleiðis hópum.“
Á síðasta ári voru þrír Þjóðverjar gripnir á Schiphol-flugvelli í Hollandi með 51 lundaegg frá Íslandi.
Lundaholum spillt til frambúðar
„Maður klórar sér dálítið í hausnum yfir því hvernig þetta fólk hefur náð þarna rúmlega 50 lundaeggjum,“ segir hann.
„Lundar verpa náttúrulega neðanjarðar í holum sem geta verið ansi djúpar þannig að mann grunar auðvitað að þarna hafi verið grafnar upp holur og þá er búið að spilla hreiðrinu til frambúðar.“
Að lokum hvetur hann fólk til að tilkynna það sem fyrst til lögreglu eða Náttúrufræðistofnunar taki það eftir ummerkjum um að lundaholur hafi verið grafnar upp.
