Áhöfn Bandero dúsar nú um borð í skipinu sem liggur í Sundahöfn. Landhelgisgæslan fóru um borð í það á fullri ferð í gærkvöldi eftir að hvalveiðimenn kölluðu eftir hjálp. Athygli vakti það nú síðdegis að þrír skipverjar hver í sínu lagi voru færðir á brott af lögreglu. Þar var um að ræða þá þrjá sem lögregla telur ganga í stafni fyrir skipinu og bera meiri ábyrgð en óbreyttur áhafnarmeðlimur.
Alls konar brot koma til greina
Aðspurður segir Ásgeir að rannsókn málsins snúi að gruni um hættubrot.
„Þarna er talið að liðsmenn þessara samtaka hafi reynt að kasta netum og einhverju járn- eða vélarrusli sem að átti að lenda í skrúfu skipsins Hvalur níu. Og ef að það hefði tekist að þá er mjög líklegt að það hafi orðið stjórnlaust skip úti á hafi. Það er auðvitað einhverjar hættulegustu aðstæður sem sjómenn geta lent í,“ segir hann.
„Síðan erum við auðvitað með lög um Landhelgisgæsluna. Því er skylt að hlusta á rás 16. Öllum sjófarendum er skylt að hlusta á þá rás. Þá er öllum skylt að fara eftir fyrirmælun Landhelgisgæslunnar og það er í almennum hegningarlögum að óheimilt er að tálma vinnu þeirra sem fara með lögregluvald. Þetta er svona brot af því sem við erum með til umfjöllunar,“ segir hann svo.
Ólíklegt að fari verði fram á gæsluvarðhald
Lögregla hefur til rúmlega ellefu í kvöld til að ákveða hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum áhafnarliðanna. Ásgeir segist ekki telja það líklegt. Öllum skipverjum hafi verið meinuð landganga og dúsa þeir því um borð.
„Greinargerð er farin til Útlendingastofnunar þar sem lögregla óskar eftir því að þessu fólki verði brottvísað með endurkomubanni. Það er mjög íþyngjandi aðgerð en 14 af þessum 21 eru ekki af Schengen-svæðinu sem þýðir að þeim yrði meinuð innganga á Schengen-svæðið í tvö ár,“ segir Ásgeir.
Hann segir að lögregla stefni að því að klára bráðarannsóknarvinnuna í kvöld, taka af öllum áhafnarmeðlimum skýrslu og afgreiða það sem nauðsynlegt er að afgreiða á þessu stigi málsins fyrir lok kvöldsins. Viðvera lögreglu við höfnina muni minnka samhliða því.