Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff eru að skilja eftir 23 ára hjónaband. Vísir greinir frá þessu og samkvæmt heimildum þeirra hefur ferlið verið í gangi undanfarna mánuði og sér nú fyrir endann á því. Ólafur Ragnar og Dorrit gengu í hjónaband á sextugsafmæli Ólafs Ragnars í maí 2003. Hún naut mikillar hylli þjóðarinnar og var almenn hrifning þegar hún og Ólafur fóru að hittast skömmu fyrir aldamót.
Ólafur Ragnar og Dorrit að skilja