Ók rútu við Landmannalaugar án réttinda

LandmannalaugarMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: David Karnå/Wikipedia
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir umferðarlagabrot en greint er frá ákærunni í Lögbirtingablaðinu.
Maður sagður hafa ekið bifreið um Landmannalaugar í Rangárþingi eystra, við farþegaflutninga í atvinnuskyni án þess að hafa öðlast til þess ökuréttindi, uns lögregla stöðvaði þar aksturinn. Gerðist þetta í fimmtudaginn 24. júlí í fyrra.
Lögreglustjórinn á Suðurlandi er ákærandi í málinu og er þess krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar, til greiðslu alls sakarkostnaðar og til að sæta sviptingu á réttindum til að öðlast ökuskírteini.
Málið verður tekið fyrir í lok maí í Héraðsdómi Suðurlands.