Lögregla sinnti í dag útkalli vegna ökumanns sem ók á barn og yfirgaf svo vettvang. Ökumaðurinn var stöðvaður við akstur skömmu síðar.
Þetta er meðal þeirra verkefna sem lögreglustöð 2, sem annast eftirlit í Garðabæ og Hafnarfirði, sinnti í dag.
Þá hafði lögregla afskipti af óvelkomnum aðila inni á stigagangi og var honum vísað burt. Tilkynnt var um tvö vinnuslys á svæðinu.
Brenndi gróður í garði
Í umdæmi lögreglustöðvar eitt, sem sinnir Miðborg, Vesturbæ, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og Seltjarnarnesi, var tilkynnt um mann sem var að kíkja inn um glugga á húsi. Maðurinn var horfinn á braut er lögreglu bar að garði.
Þá var tilkynnt um mann sem var að brenna rusl í garði. Í ljós kom að maðurinn var íbúi hússins og var að brenna gróður. Hann hafði sjálfur slökkt eldinn er viðbragðsaðilar mættu á svæðið.
Hundur beit hund
Einn ökumaður var stöðvaður fyrir að aka undir áhrifum áfengis og vímuefna og einum var vísað út úr íþróttamannvirki.
Laus hundur réðst á hund í taumi í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti. Bæði hundar og menn sluppu ósárir.
Þar var tilkynnt um tvo þjófnaði úr verslunum og var bifreið skilin eftir á gatnamótum.