Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast af Framkvæmdasýslunni – Ríkiseignum í útboði sem lauk nýlega. Alls bárust tíu tilboð frá fimm aðilum.
Hjúkrunarheimilið verður byggt upp við Þursaholt 6, verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa.
Að framkvæmdum loknum tekur við verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna til 25 ára um hjúkrunarheimilið þar sem Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en Ríkiseignir fela öðrum rekstur hjúkrunarheimilisins, segir í tilkynningu.
Hjúkrunarheimilið verður byggt með samblandi af forsmíðuðum og forsteyptum einingum og munu Reitir ráðast í hönnun og framkvæmdirnar í samstarfi við Art-Verk ehf. Þessi byggingaraðferð gerir Reitum kleift að stytta framkvæmdatímann.