Valdimar Víðisson, bæjarfulltrúi Framsóknar í Hafnarfirði og fyrrum bæjarstjóri Hafnarfjarðar, er kominn með nýtt starf og fer aftur á kunnuglegar slóðir, í skólasamfélagið. Valdimar greinir frá því að hann taki við 1. ágúst sem skólastjóri Húsaskóla í Grafarvogi til eins árs.
Nýr kafli framundan hjá Valdimari: „Ég hlakka til að snúa aftur“