Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur yfir til klukkan 16. Uppbókað er á ráðstefnuna en streymi frá henni má finna hér fyrir neðan.
Ráðstefnan er liður í Jean Monnet Chair verkefninu (ISARCEUR) við Háskólann á Bifröst. Áhersla er á strategískt hlutverk Íslands í öryggismálum norðurslóða og Evrópu. Viðburðurinn er samstarfsverkefni Bifrastar og sendiráða Póllands, Frakklands, Bandaríkjanna og Evrópusambandsins á Íslandi.
Á ráðstefnunni koma saman fræðimenn, diplómatar og sérfræðingar til að ræða breytt öryggisumhverfi í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu, fjölþáttaógnir og vernd mikilvægra innviða.
Meðal ræðumanna verða:
- Dr. Viktorija Vdovytsjenko frá Cambridge-háskóla, sem fjallar um umbreytingu evrópskra öryggismála.
- Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi, sem ræðir öryggisstefnu sambandsins.
- Rebecca Doffing frá bandaríska sendiráðinu og Aleksander Kropiwnicki, sendiherra Póllands.
- Antoine Michon frá franska utanríkisráðuneytinu.
- Fulltrúar frá Landhelgisgæslu Íslands og CERT-IS sem rýna í netógnir og viðbúnað á Norður-Atlantshafi.