Haraldur Noregskonungur hefur verið lagður inn á sjúkrahús og er kominn í tveggja vikna veikindaleyfi.
Haraldur, sem er 89 ára, hefur síðustu vikur verið í meðferð vegna blóðleysis sem orsakast af skorti á rauðum blóðkornum. Sjúkdóminn er yfirleitt hægt að meðhöndla með lyfjum. Haraldur hefur verið tæpur til heilsunnar um nokkurt skeið og var síðast í febrúar lagður inn á sjúkrahús á Tenerife þar sem hann var í fríi.