Norðmenn eru í sæluvímu eftir að hafa slegið sjálfa Brasilíu út á HM í fótbolta. Sumir stuðningsmenn hreinlega grétu af gleði.
Brasilía, stórveldið í fótbolta sem hefur unnið HM oftast allra landa, reyndist ekki of stór biti fyrir Norðmenn. Næsti róður Norðmanna er á laugardag, átta liða úrslit á móti Englandi.
„Maður vonar bara það besta og maður hefur nú upplifað sjálfur sem Íslendingur að Íslendingar hafa unnið England þannig að ég vona að ég fái að upplifa það hér í Noregi líka,“ segir Heba Líf Jónsdóttir sem hefur búið í Noregi í sex ár.