Sannkallað HM-æði hefur gripið um sig í Noregi eftir sigur Norðmanna á liði Fílabeinsstrandarinnar í 32 liða úrslitum í gær. Nærri fjörutíu ára gamall slagari með Eurovision-stjörnunni Jahn Teigen heitnum er nú sunginn hástöfum á götum úti.
Ég er bjartsýnismaður syngja Norðmenn. Ekki veitir af, næsti leikur er á móti Brasilíu. En í gær komu um 35 þúsund manns saman á Ullevaal-leikvanginum í Ósló, sjón er sögu ríkari.
Leikurinn endaði 2 - 1 fyrir Noregi, gulldrengurinn Erling Haaland skoraði auðvitað sigurmarkið og Norðmenn fóru ekki heim að sofa eftir leikinn heldur var fjör fram eftir nóttu.
„Ég rétti úr mér og varð 10-15 árum yngri við seinna markið,“ sagði hress maður á besta aldri við NRK í gær.
„Það sem mér líkar er að sólin sest aldrei og partýið hættir heldur aldrei,“ sagði ung kona sem er ferðamaður.
Gamall en góður slagari einkennislagið í ár
Lagið Optimist sem Norðmenn syngja nú hástöfum er eins konar Í síðasta skipti þeirra Norðmanna. Norski tónlistarmaðurinn og skemmtikrafturinn Teigen samdi það og flutti í forkeppni Eurovision 1989.
Optimist var ekki í þremur efstu sætum keppninnar, norsku þjóðinni til mikillar undrunar og reiði. Áhorfendur í salnum púuðu svo mikið að það var erfitt að halda áfram með útsendinguna.
„Ég er bjartsýnismaður, ég veit að allt fer vel að lokum,“ segir í textanum. HM-óðir Norðmenn vona að það verði raunin í 16-liða úrslitum á móti Brasilíu fimmtudaginn 9. júlí.