Níels Bjarki Finsen varð vitni að því í morgun (fimmtudagsmorgun), á gatnamótum við Smáralind, að bíll fór yfir á strætóakrein, hægra megin við raðirnar sem biðu á rauðu ljósi, þaðan síðan yfir á rauðu ljósi og hafnaði á hjólreiðamanni sem fór þvert yfir á grænu ljósi. Níels birti meðfylgjandi mynd í Facebook-hópi en einnig aðra mynd sem sýnir bílinn farinn yfir á rauðu ljósi og lentan á hjólareiðamanninum (sem sést afar ógreinilega og er óþekkjanlegur á myndinni).
Níels varð vitni að ljótu atviki í morgun og hafði samband við lögregluna