Þjóðin er klofin í þessu máli og Alþingi Íslendinga sömuleiðis. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og varaformaður Viðreisnar, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins takast á um þessi mál í fyrsta hluta þáttarins.
Sjónarmið eru ólík í atvinnulífinu varðandi kosti og galla Evrópusambandsins. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair og Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical móðurfélags Össurar, deila sjónarmiðum sínum. Þeir mæta upp úr klukkan hálf ellefu.
Í þriðja hluta þáttarins beinum við spjótum okkar að háskólasamfélaginu og sjónarhorni neytenda. Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna fara yfir málin.
Í lok þáttar kemur maður sem hljóp hálft maraþon í gær en er öllu þekktari fyrir sagnfræðistörf sín og átta ára setu á Bessastöðum. Guðni Th. Jóhannesson setur Evrópumálin og ekki síst fullveldi okkar Íslendinga í samhengi.
Bein útsending hefst á Bylgjunni og Vísir TV klukkan 10 og stendur fram að hádegisfréttum klukkan tólf.