Rodney Cloete, þingmaður í namibísku stjórnarandstöðunni, er ósammála Daða Má Kristóferssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um spillingu þar í landi.
Þetta kemur fram í umfjöllun stærsta dagblaðs Namibíu, The Namibian, frá því í dag.
„Það er spilling í Namibíu – ekki á Íslandi,“ sagði Daði Már við danska blaðið Berlingske í nýlegri umfjöllun þess um íslenskan sjávarútveg, þar á meðal Samherja.
Meintar mútugreiðslur Samherja til namibískra ráðamanna segja, að mati Daða, meira um aðstæður í Namibíu en á Íslandi. Meintar mútugreiðslur eru taldar nema frá 1,5 milljörðum til þriggja milljarða króna.
Cloete segir hlutverk erlendra fyrirtækja í sjávarútvegi hunsað með því að segja að spillingin sé aðeins Namibíumanna. Ekki sé rétt að einskorða ábyrgðina við aðeins annað landið.
„Ég bið hæstvirtan ráðherra að hægja aðeins á sér, því þetta er ekkert nýtt sem hann segir,“ hefur namibíski miðillinn eftir Cloete. Þvert á móti segir hann þessa orðræðu lengi hafa verið viðhafða um ríki, eins og Namibíu, þar sem verðmæti og auðlindir þjóðarinnar hafa verið unnin úr jörðu.
Cloete segir skrítið að Daði tali um spilingu í Namibíu í tengslum við þetta mál.
Hins vegar hafi stjórnendur Samherja ekki verið sóttir til saka á Íslandi auk þess sem Ísland hafi hafnað framsalsbeiðnum frá Namibíu.
Namibía hafi ráðist í aðgerðir – þar á meðal handtökur, ákærur og úrbætur í sjávarútvegi vegna málsins.
Fréttin var uppfærð þar sem blaðamaður namibíska miðilsins eignaði Daða Má ummæli sem hann lét ekki falla.