DV greindi frá því þriðjudaginn 21. júlí að Markús Darri Arnoddsson, 23 ára maður á Akureyri, hefði orðið fyrir stöðugum og stigmagnandi ofsóknum af hendi nágranna síns. Mennirnir eru báðir leigjendur í félagslegu húsnæði hjá Akureyrarbæ. Ofsóknirnar náðu hámarki skömmu fyrir frétt DV um málið, þegar Markús þurfti að leita til bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri eftir líkamsárás mannsins. Markús var þá úti á svölum heima hjá sér þegar nágranninn kom þangað og réðst á hann.
Nágrannaofsóknirnar á Akureyri – Unnið að farsælli lausn málsins