Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að grípa til aðgerða vegna bíla sem lagt er við verslunarmiðstöðina til lengri tíma. Frá þessu greinir Vísir.Gjaldskyldan mun aðeins taka gildi þegar lagt er við Smáralind lengur en í fjórar klukkustundir. Með þessu móti vilja forsvarsmenn verslunarmiðstöðvarinnar tryggja að viðskiptavinir hafi greiðan aðgang að bílastæðum, en aðgengið hefur verið minna en áður undanfarið vegna mikillar uppbyggingar á svæðinu sem og vegna aukinnar aðsóknar.
Munu rukka fyrir bílastæði við Smáralind