Vivian Motzfeldt, fyrrverandi utanríkisráðherra Grænlands, er gengin í stjórnarflokkinn Demokratiit. Hún sagði skilið við stjórnmálaflokkinn Siumut eftir að hann sagði sig frá grænlensku landstjórninni í mars á þessu ári.
Við það tapaði Motzfeldt stöðu utanríkisráðherra. Hún sagði þá að Siumut hefði, með því að segja sig úr stjórninni, tekið ákvörðun um að útiloka sig frá pólitískum völdum á Grænlandi.
KNR, ríkisútvarp Grænlands, greinir frá.
Motzeldt hafði verið meðlimur í Siumut í meira en 20 ár þegar hún gekk úr stjórnmálaflokknum. Hún tilkynnti á Facebook-síðu sinni að hún væri gengin til liðs við Demokratiit.
„Ég mun vinna eftir þeim gildum sem ég hef séð í ykkar pólitíska starfi. Kærar þakkir fyrir móttökurnar, ég hlakka mikið til samstarfsins,“ skrifar Motzfeldt.
Með færslunni fylgir mynd af henni og Jens-Frederik Nielsen, formanni landstjórnar Grænlands og leiðtoga Demokratiit.
Nielsen skrifar á Facebook-síðu sinni að Motzfeldt sé hjartanlega velkomin í flokkinn.
„Vivian hefur í fjölda ára gegnt mikilvægu hlutverki fyrir landið okkar. Sem ráðherra utanríkismála hefur hún staðið í miðju stormsins og talað okkar máli af mikilli reisn og miklum styrk,“ skrifar Nielsen.
Vísar hann væntanlega til þess að Motzfeldt var í veigamiklu hlutverki sem utanríkisráðherra þegar Grænlandsásælni Donalds Trumps Bandaríkjaforseta náði hápunkti fyrr á árinu.
„Ég fagna því innilega að Vivian verði nú hluti af þingflokki okkar á grænlenska þinginu. Hún kemur inn með mikla þekkingu og reynslu, sem verður dýrmætt í því starfi sem er fram undan,“ skrifar Nielsen.