Sóttvarnalæknir telur líkur á ebólusmiti af völdum Bundibugyo-veirunnar á Íslandi mjög litlar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef embættis landlæknis.
Faraldur af völdum veirunnar hefur geisað undanfarnar vikur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó og Úganda. Grunur er um yfir 500 tilfelli og 130 dauðsföll, flest í Ituri-héraði Kongó. Þann 17. maí lýsti Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin faraldrinum yfir sem bráðri ógn við lýðheilsu þjóða. Í tilkynningu landlæknis segir að slík yfirlýsing þýði ekki að um heimsfaraldur sé að ræða heldur sé hún til þess gerð að efla alþjóðlega samhæfingu og stuðning við þau ríki sem fyrir áhrifum veirunnar verða.
Sóttvarnarstofnun Evrópu (ECDC) metur litlar líkur á smiti hjá einstaklingum frá ESB og EES sem búa í eða ferðast til Ituri-héraðs. Mjög litlar líkur eru taldar á smiti meðal fólks sem býr innan ESB og EES, þar með talið á Íslandi, segir í tilkynningu. Sóttvarnalæknir fylgist náið með áhættumati og uppfærir leiðbeiningar á heimasíðu landlæknis ef staðan breytist.
Engar sérstakar aðgerðir eru nauðsynlegar fyrir almenning á Íslandi að svo stöddu, umfram það að fylgjast með opinberum upplýsingum og fara eftir gildandi ferðaráðleggingum.
Umfangsmeiri faraldur en tölur gefa til kynna
ECDC bendir á að líklegt sé að faraldurinn sé umfangsmeiri en smittölur gefi til kynna, bæði hvað varðar fjölda tilfella og útbreiðslu. Upplýsingar um smitleiðir og hvaða hópar hafa orðið fyrir áhrifum eru enn takmarkaðar vegna ótryggs ástands og annarra áskorana á svæðinu. Dauðsföll meðal heilbrigðisstarfsfólks hafa vakið áhyggjur af mögulegu smiti innan heilbrigðisþjónustu.