Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni

Kaffistofa Samhjálpar fær að vera áfram í húsnæði Fíladelfíusafnaðarins út ágústmánuð, en safnaðarpresturinn segir núverandi ástand óviðunandi til lengri tíma. Bráðabirgðalausnin, sem átti að standa í tvo mánuði, er orðin tíu mánuðir og kallar söfnuðurinn eftir varanlegu húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar.
„Við erum svolítið að bíða eftir að sjá hvað borgin gerir af því við höfum heyrt það frá borgarstjórninni nýju að þau séu að skoða málið og ætli að fara í þetta mál. En núverandi fyrirkomulag það gengur ekki mikið lengur, einfaldlega vegna þess að þetta var aldrei ætlað til lengri tíma en tveggja mánaða,“ segir Helgi Guðnason prestur í Fíladelfíu í frétt á RÚV.
Húsnæðislaus eftir niðurrif í Borgartúni
Kaffistofa Samhjálpar varð húsnæðislaus í október í fyrra þegar fyrra húsnæði hennar við Borgartún var rifið. Fíladelfíusöfnuðurinn sló þá skjólhúsi yfir starfsemina á meðan unnið var að því að opna nýtt húsnæði við Grensásveg.
Þau áform mættu hins vegar harðri andstöðu. Íbúar og fyrirtæki í nágrenni Grensásvegar mótmæltu áformunum harðlega og lauk málinu þannig að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi byggingarleyfið úr gildi. Síðan þá hefur ekkert bólað á nýju húsnæði fyrir kaffistofuna.