Tveir aðrir voru fluttir alvarlega særðir á sjúkrahús og tuttugu til viðbótar „urðu fyrir áhrifum,“ hefur AP-fréttaveitan eftir Axel Schuh, slökkviliðsstjóra Leipzig, sem veitti ekki nánari upplýsingar. Í upphafi greindu talsmenn borgarinnar frá því að tveir hafi látið lífið en ríkismiðillinn MDR fullyrti síðar að talsmaður lögreglu hafi leiðrétt þetta og gefið út að aðeins væri eitt staðfest andlát. Þá er sagt óljóst hvort um slys hafi verið að ræða eða árás.
Atvikið átti sér stað í Grimmaischen Straße, verslunargötu í hjarta borgarinnar sem tengir markaðstorg við ýmis kennileiti.
Fram kemur í frétt DW að Burkhard Jung, borgarstjóri Leipzig, hafi staðfest fyrri bráðabirgðatölur og sagt búið að tryggja öryggi fólks á nærliggjandi svæði. Atvikið átti sér stað í kringum 15 að íslenskum tíma, að sögn AP-fréttaveitunnar.
„Þetta er átakanlegt. Það eina sem ég get gert einmitt núna er að votta fjölskyldum fórnarlambanna samúð mína,“ sagði Jung við fréttamenn á vettvangi.
„Allt annað verður að koma í ljós við rannsókn lögreglu og rannsóknaryfirvalda.“
Leipzig er staðsett suðvestur af Berlín og eru íbúar yfir 630 þúsund. Hún er ein af stærstu borgunum í austurhluta Þýskalands.
Fréttin er í vinnslu.