Fjöldi íbúðarhúsa og barnaspítali var á meðal skotmarka Rússlandshers í loftárásum í nótt. Árásirnar vörðu klukkustundum saman og að minnsta kosti fimmtán voru drepnir.
„Við erum öll komin með nóg - komin með nóg af stríði,“ segir Larysa Bondaaruk. Hún býr í Kyiv og heimili hennar var eitt af skotmörkunum í nótt. Tveir íbúar í sama húsi voru drepnir.
Vitali Klitschko, borgarstjóri Kyiv, segir að Rússlandsher hafi skemmt eða eyðilagt meira en fjögur þúsund byggingar í borginni frá því innrásin hófst.
Klitschko segir í viðtali við BBC að áframhaldandi stuðningur vinaþjóða sé nauðsynlegur og að Úkraínumenn verði að standa áfram saman.
„Pútín dreymir um að við gefumst upp en það mun aldrei gerast,“ segir Klitschko. Að minnsta kosti fimmtán voru drepnir og tugir særðir í árásunum sem hófust skömmu eftir miðnætti í Úkraínu.
Það var ekki fyrr en um hálf níu í morgun sem þeim linnti - þó ekki lengi því aðeins um hálftíma síðar var fleiri eldflaugum skotið að Kyiv. Borgaryfirvöld hafa ákveðið að á morgun föstudag verði dagur sorgar í borginni.
„Gríðarstór árás“
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, skrifar í færslu á samfélagsmiðlum að þetta hafi verið gríðarstór árás. Hann telur Rússa hafa undirbúið hana lengi með það að markmiði að valda miklu tjóni á borgaralegum innviðum.
Stjórnvöld í Úkraínu segja að þau skorti eldflaugavarnir. Zelensky segir að svo lengi sem Úkraína búi ekki yfir nægilega öflugum loftvörnum íhugi Rússland ekki alvarlega að semja um frið.
Úkraína býr yfir Patriot-loftvarnarkerfi en hefur vantað flaugarnar sjálfar vikum saman. Samkvæmt umfjöllun CNN hafa Patriot-skotpallarnir staðið óhreyfðir í tíu vikur.