Minkarnir í Dalsbúi eru í áfalli eftir að þeim var sleppt úr búrum sínum í lok júlí. Allt af fimm dýr drepast enn dag hvern. Lögregla hefur engan grunaðan enn um verknaðinn.
Ráðast jafnvel hvert á annað
Ásgeir Pétursson, minkabóndi í Dalsbúi, segir að búið sé að ná flestum dýrunum. Yngri dýrin hafi fundist nær búinu og því lifað af fremur en þau eldri - sem voru kjarkaðri og fóru lengra. Það hafi þurft að skjóta þau dýr, því dýr sem fóru út fyrir öryggisgirðingu máttu ekki koma aftur í búið vegna smithættu. Hann segir að það hafi þurft að drepa um fjögur til fimm hundruð dýr. Um tólf þúsund dýr séu eftir.
„Eftirköstin eru þessi að við erum að missa svona þrjú til fimm dýr á sólarhring.“
Eru þau þá að ráðast hvert á annað?
„Já bæði eru þau að ráðast hvert á annað og svo er náttúrulega bara streita í dýrunum. Við höfum verið að missa dýr bara, það sér ekki mikið á þeim þannig séð sko.“
Bara úr áfallinu í rauninni?
„Já þau náttúrulega dóu bara mörg í áfallinu. Sérstaklega gömlu eldishögnarnir okkar, þeir virtust ekki þola þetta vel.“
Þrjú sérstök mál
Fyrr á árinu var brotist inn í tvö önnur bú, svínabúið Stjörnugrís og alifuglabúið Reykjabú. Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að rannsókn sé í fullum gangi. Einhverjar ábendingar hafi borist en litlu skilað.
Er enginn grunaður í málinu eða grunaðir?
„Ekkert sem við getum tjáð okkur um, við erum bara að skoða gögn.“
Og málin í þessum þremur búum eru þau rannsökuð saman eða eru þetta bara allt sérstök mál?
„Nei þetta er allt rannsakað í sitthvoru lagi að svo stöddu að minnsta kosti.“
Er einhver samnefnari á milli þeirra?
„Eins og fram hefur komið þá er það þetta bréf sem var skilið eftir á svínabúinu og kjúklingabúinu en í raun annað ekki.“
Það er ólíkt á Dalsbúi, þar var ekkert bréf skilið eftir?
„Nei það passar, ekkert bréf sem fannst þar.“