Daði Már Kristófersson, efnahags- og fjármálaráðherra, segist skilja vel að fólk sé pirrað yfir því hversu langan tíma taki að ná verðbólgu niður. Hann segir að baráttan við verðbólguna snúist um tiltrú á efnahagsstjórninni og að hann trúi því sjálfur að það horfi í rétta átt.
Daði Már var gestur Kastljóss í kvöld.
Daði segir ríkisstjórnina hafa lagt mikla áherslu á hallalaus fjárlög. Sú stefna hefur verið gagnrýnd, meðal annars með tilliti til gjaldskrárhækkana og kílómetragjalds á bifreiðum.
Daði segir að staðan á húsnæðismarkaði valdi sér áhyggjum. Bakslag í framleiðslu á húsnæði þýði að ekki verði til húsnæði þegar efnahagurinn batnar. Það leiði til verðhækkana og verðbólgu.
Hann vill þó ekki meina að vaxtahækkun Seðlabankans hafi ekki verið skynsamleg.