Donald Trump Bandaríkjaforseti stóð fyrir hátíðarkvöldverði til heiðurs Xi Jinping forseta Kína og eiginkonu hans, Peng Liyuan, í gærkvöld. Bandaríkjaforseti sagði af því tilefni að forsetarnir væru meðvitaðir um að þeir væru fulltrúar ólíkra hagkerfa en tengslin milli þjóðanna væru enn til staðar.
Xi hvatti til þess að þjóðirnar héldu áfram að vera í sátt og samlyndi og sagði að Kína og Bandaríkin yrðu að haga sér eins og ábyrg stórveldi.
Trump gaf Xi styttu af skallaerni sem er tákn Bandaríkjanna.
Óljóst hvort samkomulag hafi náðst um deiluefni
Ekki er ljóst hvað muni koma út úr heimsókn Kínaforseta til Bandaríkjanna. Greinendur segja að heimsóknin hafi snúist meira um sjónarspil en innihald, en móttökurnar og hátíðarbragurinn dragi aðeins úr spennu milli þjóðanna, í það minnsta á yfirborðinu.
Tíminn mun leiða í ljóst hvort forsetarnir hafi náð samkomulagi um deiluefni sín líkt og Íran, gervigreind, Tævan og tolla.
Forstjórir velkomnir en fjölmiðlar síður
Fjölmargir forstjórar bandarískra tæknifyrirtækja voru meðal gesta í hátíðarkvöldverðinum og meðal þeirra sem sátu til borðs með bandarísku og kínversku forsetahjónunum voru stjórnarformaður Apple, Tim Cook, og Elon Musk, forstjóri Teslu.
Fréttamönnum CNN og MSNBC var meinaður aðgangur að hátíðarkvöldverðinum.
Breska ríkisútvarpið segir að aðeins blaðaljósmyndara og hljóðupptökumanni CNN hafi verið leyft að fara inn. Fréttamaður MS NOW fékk heldur ekki að fara á kvöldverðinn.
Bandaríkjaforseti bannaði CNN, MSNBC og Politico aðgang að Hvíta húsinu í síðustu viku. Dómstóll í Washington D.C. skipaði síðan stjórnvöldum að veita fjölmiðlunum aftur aðgang að Hvíta húsinu og banninu var aflétt í gærmorgun.