„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari“

Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður gagnrýnir Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta Íslands, harðlega fyrir ummæli hans um að engin trygging sé fyrir því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram ef samningar náist við Evrópusambandið en þetta sagði forsetinn fyrrverandi í viðtali við Frosta Logason.
Í Facebook-færslu segir Illugi að Ólafur Ragnar viti vel að slíkt sé ekki raunhæfur möguleiki.
„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari,“ skrifar Illugi.
Hann segir að fyrrverandi forsetinn sé vísvitandi að ýja að því að ríkisstjórnin kunni að sleppa annarri þjóðaratkvæðagreiðslu, þrátt fyrir að hann telji að engar líkur séu á því.
„Auðvitað veit hann jafn vel og ég að það eru ekki minnstu líkur, nei, bara alls engar líkur á því að ríkisstjórnin reyni að sleppa við aðra þjóðaratkvæðagreiðslu ef samningar nást við Evrópusambandið,“ segir Illugi.
Að mati hans er tilgangurinn með ummælunum sá að hafa áhrif á fólk sem hann telur að kunni ekki að þekkja málið til hlítar.
„Þessi fyrrverandi forseti Íslands, þessi þrautreyndi stjórnmálamaður og sprenglærði fræðimaður á sviði stjórnmála, hann er sem sé bara að reyna að hræra í þeim sem hann telur að viti ekki betur en muni láta blekkjast,“ skrifar hann.
Illugi segist hafa séð Ólaf Ragnar gera ýmislegt um ævina en telur að þessi framganga komi sér sérstaklega á óvart.
„Þótt Ólafur Ragnar hafi gert ýmsar furður um ævina, þá hélt ég ekki að hann ætti til svona ómerkilegt stönt,“ segir hann að lokum.