Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir að gleðin sé mikil í hennar herbúðum í kvöld. Niðurstaðan sé góð víða um land og fyrstu tölur úr Reykjavíkurborg séu rúsínan í pylsuendanum.
Sjálfstæðisflokkurinn er með 31,9% og bætir við sig þremur borgarfulltrúum í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum. Sjálfstæðismenn eru einnig að skila góðum árangri í sveitarfélögum víða um landið.
„Mig grunaði að kvöldið yrði gott en að það yrði svona stórkostlegt eins og raunin er, það er mjög ánægjulegt,“ sagði Guðrún á kosningavöku RÚV.
Hún sagðist trúa því að forysta hennar og áhersla á samstöðu og öfluga grasrót hafi skipt sköpum.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði flokksmenn vera himinlifandi. Hann líkti árangri Miðflokksins víða um land við „pólitískan jarðskjálfta“.
Miðflokkurinn er með 13,1% í Reykjavík samkvæmt fyrstu tölum og þrjá borgarfulltrúa.
„Það er komið nýtt afl í sveitarstjórnarmálin á Íslandi,“ sagði Sigmundur. Tækifæri fyrir Miðflokksmenn að sitja í sveitarstjórnarmeirihluta séu víða mikil en þær ákvarðanir séu í höndum heimamanna á hverjum stað.
Samfylkingin er með 18,6% samkvæmt fyrstu tölum úr borginni og heldur þá sínum fimm fulltrúum.
„Það eru margar leiðir til að túlka niðurstöðurnar,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
„Þetta er erfitt hérna á höfuðborgarsvæðinu, þetta hefur alltaf verið erfitt í Kraganum, hann hefur verið mjög blár í langan tíma.“
Niðurstaðan sé blönduð, því þrátt fyrir að hafa viljað sjá meira fylgi á höfuðborgarsvæðinu sé Samfylkingin að sjá góðan árangur víða um landið.