Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar heldur miðað við fyrstu tölur frá Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum bæjarfulltrúa en Framsókn bætir einum við sig. Samfylkingin tapar tveimur bæjarfulltrúum, Viðreisn bætir einum við sig og Miðflokkur kemst inn í bæjarstjórn með einn bæjarfulltrúa.
Talin hafa verið 9.200 atkvæði en 24.593 eru á kjörskrá.
- Vinstrið – 4,3%
- Framsókn – 25%
- Viðreisn – 14,1%
- Sjálfstæðisflokkur – 27,2%
- Miðflokkur – 12%
- Samfylkingin – 17,4%
Þetta er þvert á skoðanakannanir sem spáðu falli meirihlutans og má þar til dæmis nefna að samkvæmt könnun Maskínu í lok apríl var Framsókn aðeins spáð hóflegri fylgisaukningu eða um 14,9%. Samfylkingunni var spáð mun betra gengi, eða 24,2% sem og Viðreisn sem var spáð 22,4% fylgi.