McDonald's tekið á teppið í Þýskalandi

Héraðsdómur í München hefur bannað skyndibitakeðjunni McDonald's að auglýsa í Þýskalandi að fyrirtækið stefni að kolefnishlutleysi árið 2050, eftir að umhverfisverndarsamtökin DUH höfðuðu mál vegna fullyrðinganna.
Málið snerist um yfirlýsingar á heimasíðu McDonald's þar sem fyrirtækið sagðist ætla að verða „kolefnishlutlaust“ fyrir árið 2050, þar með talið í allri aðfangakeðju sinni. DUH taldi loforðið villandi og gagnrýndi að fyrirtækið hefði ekki lagt fram skýra áætlun um hvernig markmiðinu yrði náð.
Samkvæmt samtökunum breytti McDonald's orðalagi auglýsinganna eftir að hafa fengið formlega aðvörun, en neitaði að skuldbinda sig til að endurtaka ekki slíkar fullyrðingar. Í kjölfarið var málið tekið fyrir fyrir dómi í München.
McDonald's kaus að verjast ekki kröfunum og samþykkti niðurstöðu málsins. Í dómi sem kveðinn var upp fyrr í mánuðinum segir að fyrirtækinu sé óheimilt að auglýsa að það stefni að því að verða kolefnishlutlaust á heimsvísu í veitingastöðum sínum og aðfangakeðju fyrir árið 2050.
Verði bannið brotið getur fyrirtækið átt yfir höfði sér allt að 250 þúsund evra sekt, jafnvirði um 36 milljóna íslenskra króna. Þá geta stjórnendur fyrirtækisins átt yfir höfði sér allt að sex mánaða fangelsisdóm.
Jürgen Resch, framkvæmdastjóri DUH, fagnaði niðurstöðunni og sagði McDonald's hafa reynt að hagnast á grænni ímynd sem fyrirtækið ætti ekki skilið. Hann benti meðal annars á umfangsmikla kjötvinnslu fyrirtækisins og mikið magn einnota umbúða.
McDonald's segir að umdeilt orðalag hafi verið fjarlægt af vefsíðu fyrirtækisins fyrir nokkrum mánuðum og að það verði ekki notað aftur. Fyrirtækið hafnaði hins vegar ásökunum um að hafa vísvitandi blekkt neytendur og gagnrýndi harða málsóknarstefnu DUH.
DUH hefur á undanförnum árum staðið að fjölda mála sem tengjast loftslagsmálum og hefur meðal annars stefnt þýskum stjórnvöldum vegna nýrrar loftslagsáætlunar sem samtökin telja ekki ganga nógu langt til að ná lögbundnum markmiðum um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.