Alma Möller heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja Matthildarsamtökin um tæpar sjö milljónir króna vegna skaðaminnkunarverkefnisins Reyks.
Reykur veitir einstaklingum sem reykja ópíóíða eða örvandi vímuefni skaðaminnkandi þjónustu, meðal annars með afhendingu á viðeigandi búnaði, einföldum vímuefnaprófum og naloxone-nefúða við ofskömmtun.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að þjónusta Reyks sé mikilvæg viðbót við aðra skaðaminnkandi þjónustu, svo sem Frú Ragnheiði og neyslurýmið Ylju, og nái vel til einstaklinga sem af ýmsum ástæðum hafi ekki nýtt sér önnur úrræði.