Flugstörf verða ekki færð úr landi með kaupum Icelandair á tæplega helmingshlut í Fly Play Europe á Möltu, þó að lítill hluti starfsemi félagsins færist þangað. Þetta segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Hann vonar að óánægja Félags íslenskra atvinnuflugmanna með kaupin bitni ekki á kjaraviðræðum félaganna.
„Við höfum verið í endurnýjun á flotanum hérna á Íslandi og erum að taka við fjölmörgum nýjum Airbus-vélum í flotann núna á næstu árum. Það er heljarinnar verkefni,“ segir Bogi.
„Á sama tíma verðum við áfram með nokkrar eldri 757-vélar í rekstri hjá Loftleiðum. Að reka eldri vélar af annarri tegund, örfáar, það er óhagkvæmni að gera það hér á Íslandi. Þannig að við erum að ná fram einfaldleika og hagræðingu með því að færa þá starfsemi annað.“
Hugsunin sé að fjölga störfum á Íslandi þó að einhver störf bætist við á Möltu, líkt og gert hafi verið í tengslum við starfsemi Icelandair í Eistlandi og á Filippseyjum í áraraðir.
„Við erum að horfa til þess að stækka leiðarkerfið áfram og sjáum veruleg tækifæri í þessu leiðarkerfi hér frá Íslandi. Við erum að færa þá ákveðna starfsemi, mjög litla starfsemi í heildarsamhengi, til Möltu – til einföldunar hér. Markmiðið er að vaxa og dafna hér á Íslandi og geta áfram boðið upp á frábær starfskjör,“ segir Bogi.
„Markmiðið er að fjölga störfum hér á Íslandi í flugi.“
Hagsmunir allra algjörlega samtvinnaðir
Félag íslenskra atvinnuflugmanna sakaði Icelandair fyrir helgi um að grafa undan kjaraviðræðum og sagði kaup á Fly Play Europe bera þess merki að flugfélagið hyggist komast undan íslenskum kjarasamningum og eftirliti yfirvalda.
„Mér þykir leitt að heyra það,“ segir Bogi.
„Félag íslenskra atvinnuflugmanna er búið að vera með samning við Air Atlanta til mjög margra ára og Air Atlanta er með talsverðan rekstur á Möltu. Ég held að það gangi bara ágætlega og í ágætri sátt. Ég held að þetta geti alveg verið þannig líka.“
Bogi kveðst vona að yfirlýsingar FÍA leiði til frekari spennu í kjaraviðræðunum. Hagsmunir Icelandair og FÍA séu algjörlega samtvinnaðir.
„Meginmarkmið, stefna og markmið Icelandair snúast um að reka tengimiðstöðina hérna í Keflavík. Markmið okkar með þessu er að efla hana og fjölga heilsársstörfum í flugi á Íslandi til lengri tíma þó að það verði einhver störf erlendis – eins og við erum búin að vera með í marga áratugi,“ segir Bogi.
„Þannig að hagsmunir allra eru algjörlega samtvinnaðir og þetta skref sem við erum að stíga hér er í rauninni skref sem mun styrkja Icelandair hér á Íslandi og er þar af leiðandi hagfellt fyrir allt starfsfólk Icelandair.“