Margir minnast Steins Ármanns Magnússonar af mikill hlýju en í morgun var greint frá því að leikarinn ástsæli hefði látist á heimili sínu á föstudag. Hér hafa verið teknar saman nokkrar færslur þar sem leikarans er minnst sem brautryðjanda á sviði íslenska grínsins. Hann var miklum mannkostum gæddur en það sem stendur upp úr hjá mörgum er minningin um húmorinn og hláturinn.Félagi Steins úr Radíusbræðrum, séra Davíð Þór Jónsson, skrifar: „Engin orð. Bara sorg.“
Margir minnast Steins Ármanns - „Brautryðjandi fallinn“