Málara­meistari af­hjúpar al­gengustu mis­tökin í sumar­verk­efnunum - Vísir

Málara­meistari af­hjúpar al­gengustu mis­tökin í sumar­verk­efnunum - Vísir

Málara­meistari af­hjúpar al­gengustu mis­tökin í sumar­verk­efnunum - Vísir

Það er komið sumar, pallarnir kalla á olíu, húsveggirnir á nýtt líf og steinveggirnir hafa ef til vill séð betri daga eftir íslenskan vetur. Margir leggja af stað í framkvæmdir af miklum krafti en Gylfi segir að fyrsta verkefnið sé í raun ekki að opna málningardósina.

„Ég segi stundum að besta málningarvinnan byrji með vatni, bursta og þolinmæði,“ segir hann og brosir.

Gylfi Már Ágústsson er sölumaður og málarameistari hjá Málningu.

Fyrst þarf að vita hvað á að meðhöndla

Málning býður upp á fjölbreytt úrval viðarvarna undir heitinu Kjörvari. Þótt Kjörvara vörurnar séu margar segir Gylfi að valið sé í raun einfaldara en margir halda. „Við byrjum alltaf á sömu spurningunni: Hvað ætlarðu að mála? Þegar við vitum hvort um er að ræða pall, húsvegg, glugga eða eitthvað allt annað, þá finnum við réttu lausnina.“

Hann nefnir sem dæmi að Kjörvari 12 sé sérstaklega ætlaður pöllum en Kjörvari 14 sé vinsælt efni fyrir húsveggi, þakkanta og aðra fleti þar sem myndast á sterk og endingargóð húð. Fyrir þá sem vilja þekjandi viðarvörn með miklu litavali sé Kjörvari 16 góður kostur.

Það er engin ein vara sem hentar í allt. Þess vegna er svo mikilvægt að fá ráð áður en hafist er handa.

Samhliða þessu sé einnig boðið upp á olíuakrýl vörurnar Kjörvara 20, 22 og 24 sem henti mismunandi verkefnum eftir því hvort um sé að ræða palla eða hálfþekjandi og þekjandi viðarvörn. „Það er engin ein vara sem hentar í allt. Þess vegna er svo mikilvægt að fá ráð áður en hafist er handa.“

Hreinsunin er stærsta skrefið

Ef Gylfi mætti aðeins gefa eitt ráð væri það einfalt. „Hreinsið vel. Það er lang mikilvægasta skrefið.“

Hann segir að um 90 prósent allra óhreininda þurfi að fjarlægja áður en ný áferð er borin á. „Margir hugsa bara um að skafa það sem flagnað hefur en það þarf miklu meira til. Óhreinindi, gróður, ryk og annað sem safnast hefur á yfirborðið þarf að fara. Ef timbrið er orðið grátt þarf líka að fjarlægja grámanm.“

Hann líkir grámanum við ryð á járni. „Þú myndir ekki mála yfir ryð. Það sama gildir um grátt timbur. Gráminn þarf að fara áður en ný viðarvörn getur unnið sitt starf.“

Hann segir háþrýstiþvott yfirleitt vera bestu leiðin, svo framarlega sem farið sé varlega. „Ekki fara of nálægt viðnum. Þá geturðu skemmt yfirborðið. Markmiðið er að hreinsa, ekki tæta viðinn upp.“

Gefðu viðnum tíma

Þegar búið er að þvo viðinn segir Gylfi að margir geri þau mistök að vilja klára verkefnið samdægurs. „Viðurinn þarf að fá tíma til að þorna. Tveir til þrír góðir þurrkaradagar eru yfirleitt mjög skynsamlegir.“ Að því loknu sé gott að fara létt yfir yfirborðið með sandpappír sem gerir yfirborðið jafnara áður en viðarvörnin fer á.

Þegar kemur að pöllum mælir hann með tveimur umferðum af pallolíu. „Viðurinn fær þá miklu betri vörn gegn veðri og vindum. Svo er eitt sem margir gera sér ekki grein fyrir: Liturinn sjálfur er sólarvörn.“

Hann segir að jafnvel mjög mildur litur geti skipt miklu máli. „Sólin er einn mesti óvinur timbursins. Smá litur getur lengt líftímann verulega.“

Ef unnið sé með nýtt timbur eða búið sé að skafa niður á beran við þurfi hins vegar fyrst að bera á grunnvörn áður en lokaáferð kemur yfir. „Þá fær viðurinn þá fúavörn sem hann þarf til að endast sem lengst.“

Skýjað veður er betra en margir halda

Þegar íslenska veðrið er annars vegar horfa flestir spenntir til sólardaga. En það er ekki endilega draumaaðstaðan fyrir málningarvinnu. „Milt og skýjað veður er í raun það allra besta.“

Hann útskýrir að of mikil sól geti þurrkað málninguna of hratt. „Málning þarf tíma til að jafna sig og harðna. Ef hún þornar of hratt getur það haft áhrif á endingu og áferð.“

Að sjálfsögðu má ekki rigna þegar verið er að mála. „Það er aftur á móti alveg hægt að nýta rigningardaga í undirbúninginn. Þrífa yfirborðið, skipuleggja verkefnið og vera tilbúinn þegar veðrið gefur grænt ljós.“

Steinveggir þurfa sömu ástina

Þótt margir tengi sumarverkefnin fyrst og fremst við timbur segir Gylfi að steinveggirnir gleymist stundum. „Undirbúningurinn er í raun mjög svipaður. Áður en ný málning fer á þarf að hreinsa steininn vel, fjarlægja gróður, óhreinindi og allt sem flagnað hefur. Svo þarf að skoða vegginn. Eru sprungur? Er eitthvað sem þarf að laga áður en málað er? Það borgar sig alltaf að gera við skemmdirnar fyrst.“

Fyrir nýjan stein eða viðgerðarsteina mælir Málning með viðeigandi grunni áður en lokaáferð er borin á. Steintex og Steinskjól eru meðal vinsælustu steinmálninga fyrirtækisins og hafa notið mikilla vinsælda hjá húseigendum um árabil. „Ef gamla málningin er hins vegar heil og í góðu ástandi eftir þvott er oft hægt að mála beint yfir hana.“

Markmiðið er að fólk geti komið til okkar með hugmynd og farið út með allt sem þarf til að klára verkið.

Allt á einum stað

Þegar verkefnið er komið á fullt þarf auðvitað meira en bara málningu. „Við erum með allt sem fólk þarf til verksins,“ segir Gylfi. „Pensla, rúllur, málningarsprautur og öll helstu verkfæri. Markmiðið er að fólk geti komið til okkar með hugmynd og farið út með allt sem þarf til að klára verkið.“

Endursöluaðilar Málningar eru BYKO, Bauhaus, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi, Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Verslunin Pan Neskaupstað, Búðin Perlan Þorlákshöfn, Launafl Reyðarfirði, Miðstöðin Vestmannaeyjum og Garðar Jónsson Akranesi.

Að hans mati snýst góð málningarvinna ekki um að flýta sér heldur að gera hlutina rétt í fyrstu atrennu. „Ef undirbúningurinn er góður verður útkoman líka góð. Það sparar bæði tíma, peninga og fyrirhöfn til lengri tíma. Það er eiginlega stærsta leyndarmálið á bak við fallegt og endingargott hús.“

#afhjúpar #algengustu #mistökin #málarameistari #sumarverkefnunum

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262904733d/malara-meistari-af-hjupar-al-gengustu-mis-tokin-i-sumar-verk-efnunum

📰 Aðrar fréttir

Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
📅 09.10.2026 👁️ 0
Mamdani vill ICE-liða á brott eftir að maður var skotinn
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York-borgar, og heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna hafa staðfest að liðsmenn tolla- og innflytjendaeftirlitsstofnunar...
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
📅 09.10.2026 👁️ 2
Reyna að blása lífi í samningaviðræður milli Rússlands og Úkraínu
Sendinefnd Úkraínu fundar með fulltrúum Bandaríkjastjórnar og evrópskum embættismönnum í Miami á Flórída í dag. Tilefni fundarins er að ræða nýjar hug...
ICE agent shoots man in New York City
📅 09.10.2026 👁️ 2
ICE agent shoots man in New York City
The Department of Homeland Security said ICE was arresting a "criminal illegal alien"; New York's mayor called it "unconscionable".
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
📅 09.10.2026 👁️ 2
Robert Kennedy yngri hyggst opna bólusetningamiðstöð
Robert Kennedy Jr. heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna kynnti í dag aðgerðir sem miða að því að rannsaka neikvæð áhrif bólusetninga, þar á meðal með opn...
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
📅 09.10.2026 👁️ 2
Abraham Lincoln kemur í land eftir tæpt ár á sjó
Það var tilfinningarík stund þegar þúsundir hermanna um borð í bandaríska flugmóðurskipinu Abraham Lincoln komu í land í San Diego í Kaliforníu í gær ...
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
📅 09.10.2026 👁️ 4
ICE-liðar hugsanlega viðriðnir dauða manns í New York
Maður var skotinn í New York í dag en fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að tolla- og innflytjendaeftirlit Bandaríkjanna, ICE, hafi átt hlut að máli.Kat...
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nærri því átta­tíu borgara liggja í valnum eftir á­rásir Rússa - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að 78 almennir borgarar hafi dáið í árásum Rússa síðustu tvo daga og að 215 hafi særst. Rússar hafa gert um...
Nærri því átta­tíu borgarar liggja í valnum - Vísir

Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tusk segir 15 ára árásarmann hafa ætlað að mynda hnífaárás í skóla
Fimmtán ára drengur sem varð 37 ára konu að bana í hnífaárás í grunnskóla í Póllandi í morgun var með myndavél festa á hjálm og ætlaði að taka árásina...
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Opin­bera haustrómantík á Spáni - Vísir
Á myndinni eru þau bæði skælbrosandi og virðast ánægð með lífið. Helga Möller var sem kunnugt er fulltrúi Íslands í Eurovision árið 1986, er Ísland tó...
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
📅 08.10.2026 👁️ 4
Nýjar ratsjár í Færeyjum en enginn sérstakur samningur við Bandaríkin
Um tvö þúsund manns frá meira en 70 löndum sækja Aðalþing Hringborðs Norðurslóða sem hófst í Hörpu í dag. Vaxandi spenna milli stórvelda og öryggismál...
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zuckerberg's image is in trouble - but Meta's business is booming
A new film paints the Meta founder as a villain. But the tech firm seems immune to bad publicity, writes our North America tech correspondent.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
📅 08.10.2026 👁️ 4
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire breaks silence to BBC
Vitalii Zhykovych gives his own account of the attempted assassination of Ukrainian-born businessman Vadym Yermolayev.
Suspect linked to Monaco bomb attack on millionaire speaks to BBC from Ukrainian prison
📅 08.10.2026 👁️ 2

Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
📅 08.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors episode three: Emotions run high as two players banished
Viewers watched to see whether Richard E Grant could save himself at the first round table of the series.
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
📅 08.10.2026 👁️ 4
'Add me to WhatsApp' scam calls to be investigated
The UK's data watchdog is investigating a spike in complaints about "robo calls" that appear to lead to a recruitment scam.
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
📅 08.10.2026 👁️ 4
ADHD and autism at risk of over-diagnosis, says government review
The review, which focuses on younger age groups, warned there was a risk society was moving from an era of under-diagnosis to over-diagnosis or mis-di...
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
📅 08.10.2026 👁️ 4
Jóhann Hlíðar og Helga Möller nýtt par
Fréttamaðurinn og rithöfundurinn Jóhann Hlíðar Harðarson og söngkonan þjóðþekkta og ástsæla, Helga Möller, hafa fellt hugi saman ef marka má færslu He...
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Móður og smábarni hennar hrint af fimmtándu hæð – Móðureðlið bjargaði barninu
Kona á þrítugsaldri hrapaði til bana af svölum á fimmtándu hæð fjölbýlishúss með ungabarn sitt sem hún náði að skýla og bjarga frá dauða. Lögreglunni ...
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aftaka fjöldamorðingja verður sýnd í beinu streymi
Aftaka Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, sem myrti 13 manns á herstöðinni Fort Hood í Texas árið 2009, verður sýnd í beinu streymi.Pe...
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilja auka við­veru NATO í norðri - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá bæði íslenskum og kanadískum stjórnvöldum. Anand á fund með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á morgun og ...
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
📅 08.10.2026 👁️ 4
COVID lék Stefán veitingakóng grátt og dómstólar sýna honum enga miskunn
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir Stefáni Magnússyni fyrir skattalagabrot í rekstri nokkurra mjög þekktra og vinsælla veitingastaða. Stefán var saka...
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fort Hood shooter's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says
"We'll make sure that people are able to watch it," the US Defence Secretary Pete Hegseth said on Thursday.
Fort Hood attacker's execution by firing squad will be livestreamed, Pentagon says

Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ætla að streyma af­töku í beinni - Vísir
Þetta verður í fyrsta sinn sem herinn tekur mann af lífi með aftökusveit frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Hasan skaut þrettán óvopnaða hermenn t...
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
📅 08.10.2026 👁️ 4
Halla vísar ásökunum um „leikrit“ til föðurhúsanna
Halla Gunnarsdóttir formaður VR vísar ásökunum Sólveigar Önnu Jónsdóttur formanns Eflingar um að kjaraviðræður VR við Samtök atvinnulífsins hafi verið...
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú - Vísir
Dorrit er fædd í Ísrael en fluttist til Bretlands á unglingsárunum. Rætt var við Dorrit í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag, af því tilefni að í gæ...
Máttu tæma lónið - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 3
Máttu tæma lónið - Vísir
Málið á rætur að rekja til haustsins 2020 þegar Orkuveita Reykjavíkur tók ákvörðun um að Árbæjarlón yrði tæmt til frambúðar. Með því var ákveðið að El...
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fram­hald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum - Vísir
Á morgun, 9. október, er fjörutíu ára afmælisdagur sjónvarps á Sýn sem þar til í fyrra hét Stöð 2. Í tilefni dagsins verður sérstakur afmælisþáttur sý...
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
📅 08.10.2026 👁️ 4
Fasteignadrama á Ólafsfirði: Kaupum á einbýlishúsi rift vegna þakfúa
Landsréttur hefur staðfest riftun héraðsdóms á kaupum tveggja kvenna á einbýlishúsi á Ólafsfirði sem þær keyptu af karlmanni fyrir 33 milljónir króna ...
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
📅 08.10.2026 👁️ 4
Burnham calls on Polanski to reverse Green Party's Zionism motion
The prime minister has intervened in the row over the motion passed by members at Green Party conference.
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
📅 08.10.2026 👁️ 4
Zack Polanski failed to show leadership over Zionism motion, ex-Green leader says
Caroline Lucas tells the BBC Zack Polanski should have taken part in a vote on a motion declaring Zionism a form of racism.
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
📅 08.10.2026 👁️ 4
„Það er þá bara enn einn skammarbletturinn á framferði þessa fólks“
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja að leikrit hafi verið sett á svið í samningaviðræðum SA og VR. Hún segist íhuga alvarlega stöðu...
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
Hvað veistu um... Nóbels­verð­launin? - Vísir
Árið 1969 bættust síðan við verðlaun sænska seðlabankans í hagfræði í minningu Alfreds Nobel. Nóbelsverðlaunin eru veitt ár hvert og verðlaunahafar fá...
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
📅 08.10.2026 👁️ 4
Pawel segir Bókun 35 ekki ástríðumál Evrópusinna – Álíka spennandi og að taka úr uppþvottavélinni
Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir það ekkert ástríðumál fyrir Evrópusinna að samþykkja frumvarp um Bókun 35. Þetta sé einfaldlega partur af...
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Eins og þegar liðið manns vinnur heimsmeistaramót í fótbolta“
Það er vinsæll samkvæmisleikur áhugafólks um bókmenntir að giska á hvaða höfundur hreppir Nóbelsverðlaunin ár hvert. Fréttastofa heimsótti Einar Björn...
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikilvægt að festu hafi verið náð fyrir næsta ár
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir það mikið gleðiefni að ríkisstjórnin, Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Samband ísl...
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ - Vísir
„Fréttir af knattspyrnuleik nemenda skólanna okkar sem fram fór í gærkvöldi eru okkur vægast sagt mikil vonbrigði,“ skrifar Sólveig Guðrún Hannesdótti...
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
📅 08.10.2026 👁️ 5
Mikil og góð kornuppskera á Suðurlandi
Það er nóg að gera hjá kornbændum þessa dagana, eins og á bænum Hvammi í Ölfusi, en þar er korn ræktað á um 24 hekturum og er nánast búið að slá og þr...
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 5
„Ég fagna því að þessu leik­riti sé lokið“ - Vísir
„Ég vil tryggja að launafólk haldi ekki að þetta leikrit hafi skilað einhverjum árangri umfram það sem Breiðfylkingin hafði þegar náð fram,“ skrifar V...
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' during royal exit
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
📅 08.10.2026 👁️ 4
Harry says he 'slipped into depression' after leaving UK for Canada
The Duke of Sussex says he had an "adrenaline crash" while visiting Vancouver Island to "get some space".
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
📅 08.10.2026 👁️ 4
Aflýsa eða fresta viðburðum VÍ-MR viku vegna skrílsláta á kappleik
Ákveðið hefur verið að aflýsa eða fresta viðburðum í tilefni árlegrar MR-VÍ viku vegna skrílsláta sem upp komu á fótboltaleik skólanna tveggja í gær. ...
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
📅 08.10.2026 👁️ 4
Tveir Lettar hand­teknir á breskri her­stöð í nótt - Vísir
Öryggisverðir við herstöð breska flughersins við Molesworth fundu yfirgefinn bíl nærri herstöðinni um klukkan tíu í gærkvöldi, að staðartíma. Í kjölfa...
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
📅 08.10.2026 👁️ 4
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND)
Borgarráð í Bandaríkjunum hefur fund með „Heill Satan“-bæn (MYNDBAND) Fréttin8. október 2026ErlentLeave a Comment Fundur í borgarstjórn í Iowa hefur v...
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
📅 08.10.2026 👁️ 4
Ísafjarðarbær leiðir hönnun og byggingu nýs verknámshúss í stað ríkisins
Bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar og mennta- og barnamálaráðherra undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um stækkun verknámshúss Menntaskólans á Ísafirði. Stækk...
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
📅 08.10.2026 👁️ 4
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu
Vilhjálmur segir „fjölmiðlasirkus“ ekki hafa skilað betri niðurstöðu Formað­ur Starfs­greina­sam­bands­ins seg­ir VR og Fag­fé­lög­in ekki hafa náð fr...
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
📅 08.10.2026 👁️ 5
Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar: Leigubremsa er almannahagsmunamál
Fyrirhugað frumvarp um breytingar á húsaleigulögum sem nú er rætt á Alþingi er ekki bara leigjendum þessa lands til hagsbóta, heldur almenningi sem he...
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
📅 08.10.2026 👁️ 4
Dómur Landsréttar yfir Margréti Löf – Gátu ekki tekið afstöðu til kröfunnar um að hún yrði svipt arfi
Formsatriði varð til þess að Landsréttur vísaði frá kröfu hálfbróður Margrétar Löf um að hún yrði svipt erfðarétti yfir föður sínum. Landsréttur staðf...
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
📅 08.10.2026 👁️ 4
Einar rifjar upp eftirminnileg kynni sín af Míkhaíl Gorbatsjov - Þetta kom honum mest á óvart
Einar Bárðason, framkvæmdastjóri og viðburðahaldari með meiru, er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi forseta So...