Karlmaður var stunginn 11 sinnum í Barcelona á Spáni þegar ráðist var á hann. Maðurinn starfar fyrir svokallað anti squatting fyrirtæki, fyrirtæki sem sinna því að bera út hústökufólk og er sagður vera á spítala í lífshættu eftir árásina.
Samkvæmt spænskum miðlum og myndskeiðum sem gengið hafa á samfélagsmiðlum má sjá hóp ráðast að manninum áður en hann er stunginn ítrekað. Talið er að árásarmennirnir séu hústökumennirnir sem átti að vísa úr húsinu eftir að þeir höfðu tekið eignina ófrjálsri hendi.
Hústaka er vaxandi vandamál á Spáni í mörgum borgum landsins, sérstaklega í Barcelona. Þar hafa svokallaðir okupas, eða hústökumenn, yfirtekið íbúðir og tómt húsnæði árum saman, oft í langan tíma áður en eigendur ná að fá húsnæðið aftur í gegnum réttarkerfið, en réttur hústökufólks í landinu er mjög sterkur.
Sérhæfð fyrirtæki hafa sprottið upp
Vegna þess hversu langan tíma getur tekið að losna við ólöglegt hústökufólk hafa sérstök fyrirtæki sprottið upp sem sérhæfa sig í að aðstoða eigendur við að endurheimta húsnæði sitt. Slík fyrirtæki starfa oft á gráu svæði í augum laganna og mæta reglulega mótspyrnu eða átökum þegar þau reyna að koma fólki út úr eignum.
Á Spáni hafa fasteignaeigendur ítrekað kvartað yfir því að lagakerfið verndi hústökumenn um of og að brottrekstur geti tekið mánuði eða jafnvel ár. Þetta hefur orðið sérstaklega áberandi í stórborgum þar sem húsnæðisvandi, skipulögð glæpastarfsemi og ólögleg hústaka blandast oft saman.
🇪🇸🔴Dominican immigrants lynch and stab a Spanish man 11 times in Barcelona.
The victim works for an anti-squatting company that tries to recover homes to their proper owners.
He is in critical condition. https://t.co/kNlY5pFN5K pic.twitter.com/jLuoNZGIEB
— Remix News & Views (@RMXnews) May 6, 2026