Hljómsveitin er ein áhrifamesta sveit landsins og hlaut mikla velgengni alþjóðlega. Lagið Stick -Em Up fékk til að mynda spilun á MTV og varð eitt þekktasta lag sveitarinnar.
Quarashi fagnar þrjátíu ára afmæli og segir Sölvi Blöndal, einn forsprakki hljómsveitarinnar, að tónleikarnir verði þeir stærstu til þessa.
„Við seldum út Laugardalshöllina árið 2002 og þá var það í fyrsta sinn sem íslenskt band gerði það. Núna erum við að endurtaka leikinn og er þetta þrjátíu ára afmælið okkar. Við hugsuðum að þrjátíu ára afmæli væri góður tímapunktur til að halda skemmtilega tónleika, þá er maður ekki of gamall og ekki of ungur.“
Tónlistin hafi lifað
Allir stærstu slagararnir verða teknir í kvöld í bland við ný lög. Emmsjé Gauti, Gísli Pálmi og Mugison eru á meðal gesta og segir Sölvi von á frábæru partýi.
„Það er ótrúlegt hvað það er mikið af ungu fólki sem er aðdáendur Quarashi og maður er mjög þakklátur fyrir það að þetta einhvern veginn endurnýjast kynslóð eftir kynslóð. Maður getur varla beðið um meira og það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þetta er að sjá hvernig þessi tónlist hefur lifað.“
Dagskráin hefst klukkan hálf sjö og verður dansað fram til lokunar. Nálgast má upplýsingar um miðakaup á Tix.is.
„Við sprengjum þetta hús í loft upp.“