Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir

Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir

Lýsir á­falli vegna vinnu­bragða gamla meiri­hlutans - Vísir

Greint var frá því í gær að verð á máltíðum afgreiddum af Reykjavíkurborg í heimsendingu, til íbúa í þjónustuíbúðum og í félagsmiðstöðvum aldraðra muni hækka um allt að sjötíu prósent. Formaður velferðarráðs segir þetta einungis viðbragð við óráðsíu fyrri meirihluta. 

Það var snemma í störfum hennar sem formaður sem á hana fóru að renna tvær grímur. Hún lýsir áfalli við að komast á snoðir um vinnubrögð fyrri borgarstjórnarmeirihluta. „Ég var í sjokki þegar ég komst að þessu,“ segir Ragnhildur Alda.

„Þessi vinnubrögð voru alls staðar, við erum á fullu að vinda ofan af því að það voru gerðir samningar sem voru ekki fjármagnaðir.

Afleiðingarnar séu alvarlegar.

„Nú er þjónusta í uppnámi víða um borg því að þau stunduðu þetta.“

Formaður velferðarráðs segir forvera sinn í starfi, Sönnu Magdalenu, oddvita Vinstrisins, vel hafa vitað hver staðan sé.

„Þau vissu það öll,“ segir Ragnhildur Alda. „Peningurinn er bara búinn og einhvern veginn þarf að fjármagna þetta svo við getum veitt þessa þjónustu.“

Ekki hefur verið tekin endanleg ákvörðun um gjaldskrárhækkunina þar sem hún krefst samþykktar borgarráðs. Næsti fundur þar fer fram á fimmtudag.

Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Rúnar Freyr Gíslason eru borgarfulltrúar hins nýja meirihluta. Rúnar Freyr situr fyrir hönd flokks borgarstjóra, Sjálfstæðisflokksins, og Þorvaldur Davíð er fulltrúi Viðreisnar í velferðarráði. Myndin var tekin þegar nýr meirihluti var kynntur í Viðey þann 27. maí síðastliðinn. Vísir/Vilhelm

„Fyrsta skrefið er að geta fjármagnað þessa þjónustu svo við getum skaffað fólki mat. Næsta skref er að finna leið til að skýla þeim sem minnst hafa á milli handanna,“ segir Ragnhildur sem er harðorð í garð fyrri meirihluta.

„Allt þetta er eitthvað sem fyrri meirihluti, sem bjó til þennan samning og lét ekki peninginn fylgja með, vissi í hvað stefndi og gerði ekki neitt.“

Málið vekur upp sterkar tilfinningar hjá formanninum sem er mikið niðri fyrir.

„Ég er svo reið. Þetta er alltaf sama sagan, þú veist, þetta lendir bara á gamla fólkinu,“ segir hún og staldrar við.

„Kaldhæðnin í þessu öllu er að þetta sama fólk þykist svo koma af fjöllum,“ segir hún og vísar þar til flokka gamla meirihlutans sem nú mynda minnihluta í borgarstjórn ásamt Miðflokknum. Miðflokkurinn sat hjá við afgreiðslu málsins í velferðarráði en Samfylkingin og Vinstrið greiddu atkvæði gegn málinu.

Sanna Magdalena Mörtudóttir veitti fréttastofu viðtal um málið í gær, áður en rætt hafði verið við Ragnhildi Öldu.

Eldhúsið sem gaf sig

Stór áhrifavaldur í málinu er eldhús Reykjavíkurborgar að Vitatorgi þar sem framreiddar voru um 900 máltíðir á dag. Ragnhildur Alda segir frá því að það hafi árum saman verið vitað að eldhúsið að Vitatorgi væri úr sér gengið en það hafi fengið að starfa áfram á undanþágum frá Heilbrigðiseftirlitinu.

„Þau sinna engu viðhaldi í fleiri, fleiri ár – eins og með leikskólana,“ segir formaðurinn blóðheitur.

„Svo gerist það óumflýjanlega að það kemur upp listeríusýking og þá þurfa þau bara að loka með snatri.“

Í kjölfar þess hafi í mikilli skyndi farið í að bjóða út framleiðslu eldhússins.

„Það er drifið sig af stað og sá samningur tekinn, ja, sá eini sem bauðst, við Krydd og kavíar. Þetta eru miklu betri hráefni, miklu betri matur og eldhús sem stenst ítrustu kröfur, ólíkt fyrra eldhúsi – en það kostar meira.“

Hálfs milljarðs samningur til 2028

Ragnhildur hefur lítið álit á þessum vinnubrögðum fyrri meirihluta.

„Það er búið að læsa Reykjavíkurborg inni í þessum samningi, síðasti meirihluti og síðasti formaður velferðarráðs, Sanna, læsa borgina inni í þessum samningi til ársins 2028. Nema hvað, svo útbúa þau fjárhagsáætlun fyrir árið 2026, samningurinn kostar hálfan milljarð ef á að fullfjármagna hann, þau láta ekki fylgja með nema 280 milljónir. Þau fjármagna ekki einu sinni samninginn sem þau gera sjálf,“ segir Ragnhildur sem fullyrðir að fjármunirnir sem hafi verið áætlaðir í þetta hafi í raun aðeins dugað fram í mars á þessu. Það hafi því verið vitað löngu fyrir kosningar, sem fram fóru í maí, að upphæðin dygði ekki til að halda úti þessari þjónustu Reykjavíkurborgar.

Málið er sem stendur unnið í flýti. „Þetta er komið í algjört óefni og við verðum bara að geta veitt fólkinu mat og við getum það ekki öðruvísi en að fylla einhvern veginn í þetta gat,“ útskýrir Ragnhildur.

„Vandamálið er auðvitað að þetta er bara eitt dæmi af mörgum um þessi vinnubrögð, þannig að það er alls konar þjónusta úti um alla borg sem er í uppnámi vegna þess að þeir létu ekki fjármagnið fylgja,“ segir formaðurinn. „Ég bara skil ekki þessi vinnubrögð. Síðasti meirihluti eyddi öllu á debetkortinu og öllu á kreditkortinu.“

Ekki liggur fyrir hvernig reynt verður að koma til móts við þann hóp sem minnst hefur milli handanna.

„Það eru margar hugmyndir á borðinu,“ segir Ragnhildur. „En fyrst þurfum við að reyna að finna fjármagn.“

Þrátt fyrir gjaldskrárhækkunina verða máltíðir enn niðurgreiddar um fjörutíu prósent, segir Ragnhildur. Sem stendur sé verið að niðurgreiða máltíðirnar um sjötíu og fimm prósent.

Hildur Björnsdóttir tók við borgarstjóralyklunum úr höndum Heiðu Bjargar Hilmisdóttur þann 2. júní síðastliðinn. Vísir/Lýður

Mötuneyti Vitatorgs lokar um helgar

Auk gjaldskrárhækkana verður lokað fyrir þjónustu á Vitatorgi um helgar. Þar var hægt að mæta alla daga vikuna í hádegismat en frá fyrsta september verður lokað fyrir það, gangi tillögur meirihluta velferðarráðs fram. 

 Til útskýringar segir Ragnhildur að einfaldlega sé of dýrt að halda þjónustunni úti um helgar eftir að eldhúsið lokaði. Matur sé þó áfram afgreiddur um helgar af Reykjavíkurborg eins og áður í heimsendingum og til íbúa í þjónustuíbúðum.

#gamla #lýsir #vegna #vinnubragða #áfalli

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923434d/lysir-afalli-vegna-vinnubragda-gamla-meirihlutans

📰 Aðrar fréttir

Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir
Eða brúnkukremið. Nú eða ljósabekkina… Það að að vera sólbrún þótti nú samt lengst af ekkert smart. Að minnsta kosti lagði aðallinn í Evrópu það á sig...
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 0
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem bandaríska strandgæslan sendi frá sér en þar kemur einnig fram að skip, þyrlur og flugvélar tækju þátt í leitinni, ...
Grípum til vopna
📅 04.10.2026 👁️ 0
Grípum til vopna
Grípum til vopna Fréttin4. október 2026Aðsend greinLeave a Comment Þröstur Jónsson skrifar. Kristnir í þessu landi sem víðar þurfa að taka sig á og ga...
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
📅 04.10.2026 👁️ 0
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
Bandaríkjamenn þurfa að fallast á alla vopnahlésskilmála Íransstjórnar sem fram koma í samningsdrögunum sem gerð voru í Pakistan áður en opnað verður ...
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
Er þetta meðal þeirra 68 mála sem voru skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00. Það gistu í það minnsta þrír í fangageyms...
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
📅 04.10.2026 👁️ 1
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
Björgunarsveitir hafa fundið brak úr flugvél undan ströndum Nantucket-eyju við Massachusetts í Bandaríkjunum.Bandaríska strandgæslan segir að þarna sé...
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að síðdegis muni draga eitthvað úr bæði vindi...
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 0
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
Í dag er Davíð 21 árs og vinnur að þróun á snjallforriti sem ætlað er fólki sem glímir við spilafíkn. Ekki síst ungu fólki sem á erfitt með að stíga f...
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna Ág­úst Lín­dal Ág­ústs­son varð mátt­laus í hálfu and­lit­inu eft­ir með­ferð gegn fjórða stigs krab...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
📅 04.10.2026 👁️ 3
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — viðbúnaður í Kópavogi

Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
📅 04.10.2026 👁️ 2
Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
State police and the country's security agency are looking into the co-pilot, who attempted to take control of a Flydubai plane travelling to Israel.
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
📅 04.10.2026 👁️ 2
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
Friedrich Merz Þýskalandskanslari er kominn til Kyiv að eigin sögn til að árétta áframhaldandi stuðning við úkraínsk stjórnvöld í innrásarstríði Rússa...
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
Vísindamenn hafa fundið nýja eðlutegund í næstum fimm kílómetra hæð í Andesfjöllum í Perú. Stjórnendur Náttúrusögusafns Háskóla heilags Markúsar í höf...
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
📅 04.10.2026 👁️ 3
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
Polls suggest the election will be a closely run contest between the left-wing incumbent and his right-wing rival.
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
Bandaríska utanríkisráðuneytið vísaði tveimur írönskum erindrekum úr landi, „sparkaði þeim brott“ eins og það er orðað. Þeir höfðu áður hunsað fyrirsk...
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
📅 04.10.2026 👁️ 2
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
Engan sakaði þegar olíuflutningaskip og tvö flutningaskip rákust saman í Valderhaugfirði skammt frá Álasundi í Noregi í nótt. Tvö skipanna eru komin t...
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
📅 04.10.2026 👁️ 2
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
The key policy idea announced by David Lammy when he was justice secretary will no longer go ahead.
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
📅 04.10.2026 👁️ 2
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar y...
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
📅 04.10.2026 👁️ 3
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotl...
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
📅 04.10.2026 👁️ 3
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
Lots of the stars have worked together, some are good friends - and that can impact the show's dynamics.
When parenting advice becomes too much
📅 04.10.2026 👁️ 3
When parenting advice becomes too much
Many parents feel overwhelmed by the amount of parenting information available
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
📅 04.10.2026 👁️ 3
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
Jarðskjálfti sem fyrstu tölur benda til að hafi verið af stærðinni 3,8 reið yfir austur af Brennisteinsfjöllum klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nó...
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir

UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
📅 04.10.2026 👁️ 3
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
After highs of 28C in the final week of September, cooler air will arrive this week with temperatures falling closer to the seasonal norm.
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fyl...
Afar mjótt á munum milli Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum

'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
📅 03.10.2026 👁️ 1
'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
Several of today's papers feature Andy Burnham's latest plans as PM, including experts warning of a potential tax rise to help cover his social care p...
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
Hin 51 árs Hammond stýrir þættinum This Morning á bresku stöðinni ITV en í þætti gærmorguns virtist hún skyndilega halda um brjóstið á sér á meðan með...
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
📅 03.10.2026 👁️ 2
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
Michael Kotlikoff described the allegations of a woman who says she was drugged and gang raped as "deeply disturbing".
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
📅 03.10.2026 👁️ 3
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
Lögreglan er með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni en ekki hefur fengist staðf...
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
📅 03.10.2026 👁️ 3
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
Prime Minister Mark Carney has said the military is running scenarios in the unlikely case the US invades Canada.
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Á plakati sem ...
Jarðskjálftar í Kötluöskju
📅 03.10.2026 👁️ 4
Jarðskjálftar í Kötluöskju
Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa orðið í Kötluöskju í Mýrdalsjökli í kvöld. Einn 3 að stærð varð klukkan 21:44. Bjarki Kaldalóns Friis,...
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
Ísraelsher segist hafa gert loftárás á Gaza í dag gegn leiðtoga Hamas, Ali al-Amoudi. Yfirvöld á Gaza segja fimm hafa verið drepna í árásinni. Ísraels...
Katla skelfur - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Katla skelfur - Vísir
Bjarki Kaldalóns Friis náttúruvársérfræðingur segir í samtali við Vísi að nokkrir skjálftar hafi mælst í kringum klukkan 21.30 í kvöld. Enn eigi eftir...
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tím...
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
📅 03.10.2026 👁️ 1
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
Jude Bellingham's international future was being called into question a year ago, but now he is regarded as potentially one of England's "greatest of ...
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
📅 03.10.2026 👁️ 5
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
Í 28 fjöldahjálparkerrum víðs vegar um landið er allt það helsta sem þarf til að opna fjöldahjálparstöð, til dæmis beddar, teppi, skyndihjálparbúnaður...
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
📅 03.10.2026 👁️ 5
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
Party leader Kemi Badenoch tells the BBC that she wants to see "people who work harder" not getting punished for doing so.
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýkjörnum formanni. Salma, sem er 27 ára, hefur setið í stjórn hreyfingarinnar um nokkurt skeið en hún tekur nú við...
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
📅 03.10.2026 👁️ 2
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
Geraint Anderson says some modern workplaces reward psychopathic traits.
Sameinast um góð mál
📅 03.10.2026 👁️ 5
Sameinast um góð mál
Sameinast um góð mál Fréttin3. október 2026Geir Ágústsson, Innlent, PistlarLeave a Comment Borgarstjórn Reykjavíkur. Geir Ágústsson skrifar: Tillaga M...
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
📅 03.10.2026 👁️ 5
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð
Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð Fréttin3. október 2026Erlent, Innlent, Jón Magnússon, PistlarLeave a Comment Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður. Jón ...
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
📅 03.10.2026 👁️ 4
ASÍ styður áform ráðherra: Au-pair kerfið leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslenskt heimili
Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti fru...
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar
Aðgerðum lögreglunnar á Austurlandi á Háreksstaðaleið á þjóðvegi 1 á Austurlandi er lokið. Hópslysaáætlun var virkjuð rétt fyrir hádegi í dag eftir fj...
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 5
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...