Lunda á eynni Røst í Noregi hefur fækkað um fimmtung á einu ári. Tveir þriðju sjófuglategunda í Noregi eru á válista.
Fyrir tæpum 50 árum, 1979, urpu um 1,4 milljónir lundapara á Røst, yst á Lófót. Í ár eru pörin aðeins 165 þúsund og 88% stofnsins eru horfin.
88% lundastofns eyjarinnar horfinn
Røst er þekkt fyrir mikla lundabyggð. Hnignun stofnsins hefur verið sérlega mikil að undanförnu og varppörum fækkað um fimmtung á einu ári.
Vísindamenn segja þetta óvenju mikla fækkun og vísa til fæðuskorts sem einnar helstu ástæðu hennar. Síld, sem áður var mikilvægasta fæða lunda á þessum slóðum, hefur fært sig norðar og er nánast horfin úr fæðu þeirra.
Þeir þurfa því að fljúga langar vegalengdir út á haf til að afla sér fæðu, sem útheimtir mikla orku. Það veldur því meðal annars að ungarnir vaxa hægar.
Binda vonir við breyttar horfur eftir sumarið
Sérfræðing telja að þetta sumar gæti reynst lundanum betra. Vonir eru bundnar við að minnst helmingur paranna komi unga á legg.
Þeir benda þó á að vandinn nái langt út fyrir lundastofninn. Tvær af hverjum þremur sjófuglategundum í Noregi eru komnar á válista, meðal annars vegna loftslagsbreytinga, ofveiði, mengunar, meðafla og sjúkdóma sem ógna tilvist þeirra.