Skrifstofu Hagkaupa í Skútuvogi barst alvarleg hótun símleiðis í morgun. Í kjölfarið voru starfsmenn sendir heim og skrifstofunni lokað.
Þetta segir Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa í samtali við mbl.is.
„Við fengum símtal inn á skrifstofu í morgun með alvarlegri hótun sem við tilkynntum til lögreglu sem í framhaldi mat ástandið þannig að það ætti ekki að taka neina sénsa. Við fylgdum bara fyrirmælum lögreglunnar og rýmdum skrifstofurnar,“ segir hann.
Sigurður segir enn óljóst hvenær skrifstofan opni aftur. „Lögreglan er búin að vera að fara yfir gögn og telur sig, að mér skilst, núna á þessu stigi málsins vera búna að finna út hver þetta er,“ segir hann og bætir við að jafnvel verði hægt að opna skrifstofurnar aftur eftir hádegi.
Spurður út í eðli hótunarinnar segir Sigurður að sennilega hafi verið um veikan einstakling að ræða en að starfsfólk skrifstofunnar hafi ekki þorað annað en að taka málinu alvarlega og fylgja tilmælum lögreglu.