Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir í fréttatilkynningu að sér hafi borist tvær tilkynningar um erlendan karlmann sem hafi gefið sig á tal við eldri borgara á ferð um Árbæ í dag og falast eftir styrkjum fyrir óþekkt góðgerðarsamtök.
Maðurinn hafi ekki viljað seðla heldur greiðslukort og PIN-númer og hafi notað síma sem posa. Hann hafi leitast eftir tvö þúsund króna styrk en í ljós hafi komið að tvö þúsund evrur hafi verið teknar af kortum þeirra sem féllust á að styrkja óþekktu góðgerðarsamtökin. Upphæðin samsvarar um 288 þúsund íslenskra króna.
Lögreglan segist lítið vita annað um manninn en að hann hafi talað ensku og verið svartklæddur og í hvítum skóm.