Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir tilkomu þyngdarstjórnunarlyfja hafa leitt til fleiri heimsókna vegna ofþyngdar á heilsugæslustöðvum. Fjallað var um þyngdarstjórnun í þættinum Torginu á RÚV í gær. Margar ábendingar bárust um slæma reynslu af að leita hjálpar vegna ofþyngdar hjá heilsugæslu.
Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir ekki marga hafa leitað til heilsugæslu vegna ofþyngdar í gegnum árin.
„Þangað til þessi nýju lyf komu þá var fólk ekki mikið að leita ráðgjafar út af ofþyngd, og það var frekar að frumkvæði heilbrigðisstarfsfólks að benda á að þarna væri eitthvað verkefni sem þyrfti að leysa.“
Fólk sé í mörgum tilfellum búið að kynna sér lyfin og því sé hugsanlega minni eftirspurn eftir öðrum úrræðum, líkt og námskeiðum og fræðslu á vegum heilsugæslunnar.
Neitar ekki að fólk hafi mætt fordómum
Torginu bárust einnig ábendingar um fordóma starfsfólks hjá heilsugæslu vegna ofþyngdar, jafnvel þegar fólk leitaði þangað af öðrum orsökum. Sigríður segir starfsfólk hafa fengið fræðslu um ráð við offitu en að eflaust megi gera betur.
„Ég er ekkert að neita því ef þetta hefur verið upplifun fólks, mér finnst það líka leiðinlegt að heyra. Því við eigum náttúrlega að mæta fólki, hvað svo sem hrjáir það, af fagmennsku og með jafnræði í huga.“