Listaháskóli Íslands sameinar starfsemi sína á einn stað í Stakkahlíð 1 en viljayfirlýsing þess efnis var undirrituð í dag. Starfsemi Listaháskólans hefur verið á sjö stöðum. Ágóðinn af þróun lóðar Listaháskólans í Laugarnesi, sem nú verður umbreytt í íbúðabyggð, rennur beint til uppbyggingar skólans í Stakkahlíð.
Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, fagnar flutningi skólans í Stakkahlíð.
„Þar eru sögufræg og falleg hús sem við munum nýta og í rauninni endurbæta í takt við okkar starfsemi. Svo verður gert ráð fyrir viðbyggingu á svæðinu sem mun hýsa sviðslistir, tónlist og kvikmyndalist,“ segir Kristín.
Ýmsir kostir séu við að færa starfsemi skólans á einn stað.
„Það myndast algjör suðupottur, það býður upp á miklu þverfaglegra samtal og námsumhverfið styrkist þannig að þetta býr til ákveðna dýnamík sem við höfum óskað eftir allt frá því að skólinn var stofnaður,“ segir Kristín.