„Menn eru komnir með fiðring enda er þetta ekki bara lengsta heldur eina pásan sem hljómsveitin hefur tekið frá því hún var stofnuð árið 1988,“ segir Brynjólfur Brynjólfsson, gítarleikari eyfirsku þjóðlagapönkrokkhljómsveitarinnar Helga og Hljóðfæraleikaranna, sem fram kemur á tónleikum á Græna hattinum á Akureyri á þriðjudagskvöldið eftir 533 daga hlé.
Talið verður í stundvíslega kl. 21.
Sveitin kom síðast fram á sama stað 30. desember 2024 en eftir það þótti mönnum rétt að taka pásu í einhvern tíma. „Það var aðallega vegna þess að Helgi [Þórsson söngvari] þurfti að sinna bústörfunum meira en venjulega en nú er hann kominn tvíefldur til baka,“ segir Brynjólfur.
Eruð þið þá komnir á fulla ferð?
„Við eigum alveg eftir að ræða það; við erum bara búnir að taka tvær æfingar. En, já, það verður ábyggilega eitthvað meira, enda er það lífsmáti að vera í þessari hljómsveit og ég hef enga trú á því að menn geti haldið sig frá þessu. Ég gef engin loforð um tónleikahald en við ættum að geta komið saman alla vega tvisvar til þrisvar á ári,“ segir Brynjólfur en um árabil voru Helgi og Hljóðfæraleikararnir með fasta viðveru á Græna hattinum 16. júní og 30. desember.
„Græni hatturinn er frábær tónleikastaður og Haukur [Tryggvason] vert á heiður skilinn fyrir sitt framlag til tónleikamenningar hér fyrir norðan. Þarna er allt eins og best verður á kosið, aðstæður, græjur og annað.“
Brynjólfur segir alls ekki nauðsynlegt að taka margar æfingar fyrir endurkomuna enda séu lögin meira og minna öll í vöðvaminninu. Teknir verða helstu slagararnir úr sögu hljómsveitarinnar og Brynjólfur útilokar ekki að eitthvert nýmeti fái að fljóta með. „Það verður hræódýrt inn, eins og alltaf hjá okkur.“
Nánar er rætt við Brynjólf í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins.