Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa lagt fram sameiginlega framtíðarsýn og aðgerðaáætlun um stafræn verkefni og gagnamál í félagsþjónustu til ársins 2028.
Þetta er tilkynnt á vef Stjórnarráðsins.
Áætlanirnar byggja á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um öflun og nýtingu gagna og stafræna þróun hins opinbera í velferðarþjónustu.
Traustur grunnur
Fram kemur að í dag skorti samræmd gögn á landsvísu, kerfi tala ekki nægilega vel saman og yfirsýn yfir veitta félagsþjónustu, þarfir fólks og biðlista er takmörkuð.
Í framtíðarsýninni er meðal annars gert ráð fyrir samræmdri grunnskráningu í allri lögbundinni félagsþjónustu, að upplýsingar um réttindi og þjónustu verði aðgengilegar á einum stað á island.is og að unnið verði að sameiginlegri umsókn og samræmdu umsóknarferli óháð því hvar fólk býr á landinu.
Aðgerðaáætlunin nær til áranna 2026 til 2028 og skiptist í verkefni sem miða að því að ná meginmarkmiðum framtíðarsýnarinnar fyrir lok tímabilsins.
Aðgerðaáætlunin er sögð munu verða uppfærð í lok hvers árs með nánari upplýsingum um aðgerðir næsta árs og þau verkefni sem heyra þar undir.