Einnig fjöllum við um væntanlega vaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands í næstu viku en greiningaraðilar eru á því að peningastefnunefnd bankans muni hækka stýrivextina að þessu sinni.
Þá heyrum við af því hvernig gengur að skipuleggja kjörstaðina í borginni en kosningar fara fram á laugardaginn kemur. Formaður kjörstjórnar í Reykjavík segir að nýir kjörkassar létti mönnum lífið að þessu sinni.
Og í íþróttunum fjöllum við um sigur Valskvenna í handboltanum sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn.