Málið hefur verið eitt umfangsmesta og umdeildasta sakamál síðari ára hér á landi. Mennirnir voru handteknir í september 2022 í aðgerðum lögreglu í Kópavogi og Mosfellsbæ. Þeim var gefið að sök að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk, en þeir hafa áður verið sýknaðir af þeim hluta ákærunnar bæði í Héraðsdómi Reykjavíkur og Landsrétti.
Í héraði voru þeir hins vegar sakfelldir fyrir vopnalagabrot. Sindri Snær hlaut þá tveggja ára fangelsisdóm og Ísidór átján mánaða dóm. Landsréttur mildaði síðar þá refsingu, í átján mánuði yfir Sindra og fimmtán mánuði yfir Ísidóri, en sýknaði þá áfram af hryðjuverkahluta ákærunnar.
Hæstiréttur ómerkti þann dóm Landsréttar í mars síðastliðnum. Hæstiréttur taldi annmarka hafa verið á sönnunarmati Landsréttar og vísaði málinu aftur þangað til nýrrar meðferðar.
Dómurinn sem nú hefur verið kveðinn upp er því önnur efnislega niðurstaða Landsréttar í málinu en niðurstaðan sú sama og í fyrri umferð í Landsrétti.