Landhelgisgæslan segir Bandero hafa ógnað íslenskum sjómönnum

Landhelgisgæslan segir Bandero hafa ógnað íslenskum sjómönnum

Landhelgisgæslan segir Bandero hafa ógnað íslenskum sjómönnum

„Sakarefnið er að valda siglingahættu, fara ólöglega, án heimildar, inn í íslenska lögsögu, sigla án þess að gefa upp staðsetningar, veita mótþróa þegar leitað er eftir möguleikum til þess að koma til borðs í skipið. Þannig að sakarefnin eru fjölmörg,“ segir Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Aðgerðir Paul Watson-samtakanna við Ísland í sumar eru ekki í fyrsta skipti sem Paul Watson, umdeildur umhverfisverndar- og aðgerðasinni, beinir sjónum sínum að Íslandi. Hann hefur lengi barist gegn hvalveiðum.

Aðgerðir samtakanna í sumar voru boðaðar undir yfirskriftinni „Operation 86“ eða aðgerð 86. Markmið þeirra er að reyna að stöðva veiðar Hvals hf. í sumar.

Heiti aðgerðarinnar vísar til atburðar í nóvember árið 1986 sem vakti heimsathygli. Þá laumuðust tveir liðsmenn Sea Shepherd (samtaka sem Paul Watson stofnaði), þeir Rod Coronado og David Howitt, inn í hvalstöðina í Hvalfirði og eyðilögðu tölvur og vélar með sleggjum.

Rod Coronado er leiðangursstjóri aðgerðar 86.

Hér er sjónvarpsfrétt RÚV um aðgerðir Sea Sheperd 1986.

Alexander Kristjánsson fréttamaður tók viðtal við Georg Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar, við Bandero fyrir skömmu. Hér er viðtalið í heild sinni.

Hér koma ljósmyndir af Bandero.

„Þarna skiptir engu máli hvað mönnum finnst um hvalveiðar þetta eru íslenskir hagsmunir, þetta er íslensk lögsaga, þetta eru íslenskir sjómenn,“ segir Georg.

Hann segir óljóst hvort skipverjar verði hnepptir í gæsluvarðhald. Landhelgisgæslan hafi afhent lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu málið. Þeir taki ákvarðanir um hvort einhverjir verði handteknir og færðir í land.

Aðspurður hvert sakarefnið sé segir Georg þau fjölmörg, meðal annars að valda siglingarhættu, fara ólöglega og án heimildar inn í íslenska lögsögu, sigla án þess að gefa upp staðsetningar og sýna mótþróa þegar leitast var eftir því að komast um borð í skipið.

Georg kveðst ekki vita til þess að mál sem þetta hafi áður komið upp.

Átök hafi verið við Green Peace árið 1979 en málinu hafi lyktað þannig að lögbann hafi fengist á siglingar þeirra í efnahagslögsögunni og þeir farið.

Þetta segir Georg um aðgerður Landhelgisgæslunnar og sérsveit ríkislögreglustjóra. Aðgerðin hafi gengið vel.

„Þessi mannskapur vann eins og einn maður að þessu verki.“

Georg Lárusson segir að hætta hafi verið á ferðinni í gær.

„Þeir köstuðu netatrossum ítrekað fyrir skrúfu skipsins og það er mjög varasamt. Þeir voru með ógnandi tilburði og sigldu hratt að hvalbátnum þannig að það var ekkert annað að gera en að grípa þarna inn í. Þarna skiptir engu máli hvað mönnum finnst um hvalveiðar þetta eru íslenskir hagsmunir, þetta er íslensk lögsaga, þetta eru íslenskir sjómenn,“ segir Georg.

„Okkur ber að halda uppi lögum og reglum á hafsvæðinu og verna líf og limi okkar manna.“

Áhöfn Bandero er enn um borð.

Verður þeim haldið þar áfram?

„Það er lögregla sem tekur ákvörðun um það. Nú er þetta mál til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan tekur ákvörðun um hvernig þeir haga þeim málum og hverjum þeir sleppa lausum og hverjum ekki.“

Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir Gæsluna hafa þurft að fara um borð í skipið á ferð. Það hafi verið skuggalegt að sjá.

„Skipverjar Bandero sýndu mótþróa. Þeir neituðu öllum fyrirmælum. Skipstjórinn var ítrekað beðinn um að stöðva ferð skipsins. Hann svaraði engu og sinnti engum fyrirmælum. Þannig þeir héldu fullri ferð þannig að okkar menn þurftu að fara um borð í skipið á rúmsjó.“

„Landhelgisgæslunni ber að gæta fullveldi Íslands á sjó og við fengum fregnir af því að erlent skip væri að ógna íslenskum sjómönnum, væri komið inn fyrir 12 mílna landhelgislínu okkar án heimildar og án þess að gefa upp staðsetningar. Þarna var um hættuástand að ræða þannig að við ákváðum að grípa inn í og settum í gang þá aðgerð sem er komin að bryggju núna,“ segir Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.

Þetta var í fyrsta sinn sem Landhelgisgæslan veit til þess að Bandero hafi farið inn fyrir landhelgi Íslands.

„Það var alveg án heimilda og í ljósi þess hvers konar yfirlýsingar hafa verið gefnar um áætlanir og fyrirætlanir þá var ekki talið bjóðandi annað en að grípa inn í þessa atburðarás.“

Erlend skip þurfa að fá heimild til að sigla inn í landhelgina. Landhelgisgæslan synjaði beiðni Bandero um slíka heimild fyrir nokkrum dögum.

„Þeir tóku sér það bessaleyfi að sigla þarna inn fyrir og setja á odd léttbáta og ógna íslenskum sjómönnum og þess vegna þurftum við að grípa til ráðstafana.“

Talsmaður áhafnar Bandero sem er við Sundabakka segir Landhelgisgæsluna hafa tekið síma og önnur raftæki af áhöfninni eftir að hún tók yfir skipið í gærkvöldi. Paul Watson hefur einmitt greint frá því að hann hefur ekki heyrt frá áhöfninni síðan.

Landgöngubrú er komin við skipið og útlit fyrir að það styttist í að lögregla flytji áhafnarmeðlimi frá borði. Hér koma fleiri ljósmyndir frá Sundabakka.

Rætt var við Alexander Kristjánsson fréttamann í beinni í 10 fréttum útvarps.

„Landgöngubrúin er komin niður. Við gerum ráð fyrir því að það eigi að ferja skipverjana af skipinu og í land. Við höfum samt ekki fengið staðfest að þeir séu um borð en allur viðbúnaður bendir til þess.“

Hér koma nokkrar ljósmyndir eftir Ragnar Visage ljósmyndara RÚV af aðgerðum við Sundabakka.

Hér má sjá tvö myndskeið sem Paul Watson-samtökin deildu í gær frá aðgerð Landhelgisgæslunnar með aðstoð sérsveit Ríkislögreglustjóra.

Þá birtu samtökin þessa mynd af sérsveitarmanni um borð í Bandero.

Fréttamaður RÚV er á vettvangi og segir hóp lögreglumanna og þungvopnaðra sérsveitarmanna um borð í skipinu. Skipstjóri Bandero hefur verið handtekinn en ekki liggur fyrir hvað verður um aðra í áhöfninni.

Áhöfn Bandero er um borð í skipinu. Magnús Pálmar Jónsson, staðgengill upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, staðfestir þetta. Hann vill ekki tjá sig um hvort fleiri úr áhöfn hafi verið handteknir en skipstjóri Bandero.

„Heilt yfir hefur þetta gengið mjög vel og mjög gott samstarf á milli lögreglunnar og Landhelgisgæslunnar,“ segir Magnús Pálmar.

Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri, segir lögregluna á höfuðborgarsvæðinu enn ekki hafa tekið við málinu af Landhelgisgæslunni.

Skipinu Bandero var lagt að höfn á lokuðu svæði við Sundabakka. Það er hafnarbakki í Sundahöfn við Vatnagarða við Viðeyjarsund.

Hér má sjá lögreglu fylgja Bandero til hafnar.

Í myndbandi sem Paul Watson-samtökin deildu á Facebook í morgun líkir Paul Watson aðgerðum Landhelgisgæslunnar við milliríkjadeilu. Skipið Bandero siglir undir fána Panama.

„Við erum stödd í alþjóðlegu deilumáli eftir friðsamleg afskipti af ólöglegum hvalveiðum sem eru siðferðislega rangar og hafa skaðleg áhrif á vistkerfið,“ segir Watson.

„Þetta gefur okkur gott tækifæri til að nýta handtökurnar, mögulegar fangelsanir og réttarhöld til að beina kastljósinu að ólöglegum hvalveiðum Kristjáns Loftssonar.“

Bandero kom til hafnar fyrir örfáum mínútum.

Alexander Kristjánsson fréttamaður er í Vatnagörðum. Hann segir að skipið hafi lagt að bryggju á afgirtu svæði skipafélaganna.

Engir viðbragðsaðilar eru sjáanlegir á vettvangi en í morgunfréttum útvarps kom fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taki nú við málinu.

Góðan daginn. Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og mun í dag fylgjast með aðgerðum sem tengjast yfirtöku Landhelgisgæslunnar á skipinu Bandero.

Skipið Bandero er að leggjast að bryggju á lokuðu hafnarsvæði í Reykjavík. Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn skipsins og handtóku skipstjóra þess í gærkvöld eftir atvik við hvalveiðiskipið Hval 9.

Þegar Bandero kemur til hafnar færist málið frá Landhelgisgæslunni yfir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem tekur það til rannsóknar.

Skipið er á vegum Paul Watson-samtakanna sem halda því fram að það hafi siglt utan í Hval 9 í gærkvöldi og stöðvað það frá því að vera á hvalveiðum. Landhelgisgæslan segir skipið hafa nálgast Hval 9 og reynt að trufla för þess en hefur að öðru leyti ekki staðfest frásögnina.

Paul Watson-samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals hf. og sagst ætla að binda enda á hvalveiðar á Íslandi.

Þegar Bandero kom á Íslandsmið í júní sagði Ron Coronado leiðangursstjóri samtökin vera friðsöm og að öllum leiðum yrði beitt til að stöðva hvalveiðar án þess að beita ofbeldi. Coronado er einn tveggja sem sökktu hvalveiðiskipunum Hval 6 og 7 í Reykjavíkurhöfn árið 1986.

Málið er í þróun. Þegar fréttastofa náði tali af Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, sagðist hann lítið geta tjáð sig um málið og að hann hefði ekki upplýsingar um hver sakarefnin væru.

#bandero #hafa #landhelgisgæslan #segir #ógnað


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-07-31-landhelgisgaeslan-segir-bandero-hafa-ognad-islenskum-sjomonnum-482733

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: „Það þarf ekki að laga neitt á Íslandi“ … að mati formanns Sjálfstæðisflokksins
📅 14.09.2026 👁️ 0
Orðið á götunni: „Það þarf ekki að laga neitt á Íslandi“ … að mati formanns Sjálfstæðisflokksins
Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði fátt sem skipti máli í umræðum Alþingis um stefnuræðu forsætisráðherra í síðustu viku. Það sem er þó minnisvert úr...
Kanónur komu saman í Hvera­gerði - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Kanónur komu saman í Hvera­gerði - Vísir
Í haust er boðið upp á fjórar sýningar á Listasafni Árnesinga. Þær heita Tengsl II, Gullni hringurinn, Satt / Ósatt og Sýning úr safneign.  Áhugi á þe...
Mannauðsstjórinn skipaður for­stjóri Heil­brigðis­stofnunar Austur­lands - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Mannauðsstjórinn skipaður for­stjóri Heil­brigðis­stofnunar Austur­lands - Vísir
Þórarna hefur starfað við HSA frá 2018, fyrst sem rekstrarstjóri og síðar sem framkvæmdastjóri mannauðs. Hún er með meistarapróf í fjármálum fyrirtækj...
Icelandair: „Ljóst að aðila greinir verulega á um launaliðinn“
📅 14.09.2026 👁️ 0
Icelandair: „Ljóst að aðila greinir verulega á um launaliðinn“
Nái Icelandair ekki að gera samninga við Flugvirkjafélag Íslands áður en verkfall skellur á hefur það veruleg áhrif á flugáætlun Icelandair. „Á þessu ...
Þórarna Gró Friðjónsdóttir nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
📅 14.09.2026 👁️ 0
Þórarna Gró Friðjónsdóttir nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Þórarna Gró Friðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. október til næstu fimm ára, af Ölmu Möller heilb...
Grafalvarlegt að banna heila at­vinnu­grein - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Grafalvarlegt að banna heila at­vinnu­grein - Vísir
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um hvalveiðar og í samtali við fréttastofu s...
Staff slept while patient killed at NHS mental health unit
📅 14.09.2026 👁️ 0
Staff slept while patient killed at NHS mental health unit
Inquest hears how Rolando Torres-Pena, 22, was able to strangle and kill Hugo Flint-Cahan on a hospital ward in east London.
Höfnuðu kraðaki raka um meint ólög­mæti at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Höfnuðu kraðaki raka um meint ólög­mæti at­kvæða­greiðslunnar - Vísir
Sigfús Aðalsteinsson, fasteignasali og oddviti framboðsins Okkar borgar í Reykjavík, kærði framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar í síðasta mánuði og kra...
Oasis 2027: Knebworth return confirmed as well as Manchester and Glasgow gigs
📅 14.09.2026 👁️ 1
Oasis 2027: Knebworth return confirmed as well as Manchester and Glasgow gigs
The band have officially announced the anticipated second wave of their hit reunion tour shows.
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Í sporum kindarinnar
📅 14.09.2026 👁️ 1
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar: Í sporum kindarinnar
Ég er borgarbarn frá blautu barnsbeini. Ólst þar af leiðandi ekki upp við sauðfjárbúskap og því fjarri mér að segja bændum hvernig þeir ættu að reka b...
Ingólfur spyr hvort Hannes sé ekki manneskja: „Alltaf sýnt lífi og tilveru fólks sem ekki er hvítt fyrirlitningu“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Ingólfur spyr hvort Hannes sé ekki manneskja: „Alltaf sýnt lífi og tilveru fólks sem ekki er hvítt fyrirlitningu“
„Er Hannes Hólmsteinn Gissurarson ekki manneskja?,“ spyr Ingólfur Gíslason, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands í færslu á Facebook eftir að ...
Árni Stefán handtekinn á undirfötunum í tengslum við innbrot í þrjú eldisbú
📅 14.09.2026 👁️ 1
Árni Stefán handtekinn á undirfötunum í tengslum við innbrot í þrjú eldisbú
Lögfræðingurinn Árni Stefán Árnason var handtekinn í síðustu viku vegna rannsóknar á innbrotum í eldisbú Stjörnugríss á Kjalarnesi, Reykjabúið í Mosfe...
Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við innbrot í dýrabú
📅 14.09.2026 👁️ 1
Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við innbrot í dýrabú
Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur var í síðustu viku handtekinn vegna rannsóknar lögreglu á innbrotum í svínabú, hænsnabú og minkabú sem fra...
Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri - Vísir
Jens segir þetta þegar ummæli Gísla Marteins Baldurssonar um andstöðu við almannaútvarp eru borin undir hann. Gísli nefndi Jens sérstaklega með nafni ...
Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind
📅 14.09.2026 👁️ 1
Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind
Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind For­seti Banda­ríkj­anna neit­ar að auka reglu­verk um gervi­greind því það myndi veita Kín­verj­um fo...
Nigel Farage says £72m donation are compliant 'with the law today'
📅 14.09.2026 👁️ 0
Nigel Farage says £72m donation are compliant 'with the law today'
Ministers are seeking to put a £100,000 annual cap on donations from British expats, backdated to 25 March 2026.
Flugvirkjar hjá Icelandair í ótímabundið verkfall frá 23. september
📅 14.09.2026 👁️ 1
Flugvirkjar hjá Icelandair í ótímabundið verkfall frá 23. september
Flugvirkjafélag Íslands boðar ótímabundið verkfall frá aðfaranótt 23. september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Búast má við miklum tr...
Hið al­ræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hið al­ræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri - Vísir
Í seinni þætti Skuggavaldsins um Epstein-málið skoða prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann hvernig líf hans og dauði urðu að einni áhri...
Dýra­verndunar­sinni hand­tekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Dýra­verndunar­sinni hand­tekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Nútíminn greindi fyrst frá. Í samtali við Nútímann segist Árni hafa verið handtekinn á þriðjudaginn vegna gruns um ...
Greip um eistu lög­reglu­manns - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Greip um eistu lög­reglu­manns - Vísir
Konan var handtekin 9. nóvember 2023 vegna brots á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Hún var færð á lögreglustöðina þar sem átti að vista hana í fangageym...
Nýjar upplýsingar um dauða Hayden Panettiere - Tók eina banvæna töflu áður en hún lést
📅 14.09.2026 👁️ 1
Nýjar upplýsingar um dauða Hayden Panettiere - Tók eina banvæna töflu áður en hún lést
Nýjar upplýsingar hafa komið fram um andlát bandarísku leikkonunnar Hayden Panettiere, sem fannst látin í íbúð í Suður-Karólínu 16. ágúst síðastliðinn...
„Tak­mörkuð sólmyrkvaáhrif“ - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
„Tak­mörkuð sólmyrkvaáhrif“ - Vísir
„Alls hafa 830 þúsund ferðamenn komið hingað til lands í sumar eða frá júní til ágúst, sem eru um 20 þúsund færri en í fyrra,“ segir Arnar Már Ólafsso...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn er þverskallast við bókun 35
📅 14.09.2026 👁️ 1
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Enn er þverskallast við bókun 35
Í umræðum í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á dögunum kom fram sú skoðun að EES-samningurinn tryggði nægilega hagsmuni Íslands í samskiptum við E...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Stríðið heldur honum uppi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Stríðið heldur honum uppi
Til að skilja það sem gerðist, og gerðist ekki, í Nýju Delí um helgina þarf fyrst að skilja hvernig valdakerfi Pútíns virkar. Fáir hafa lýst því skýra...
Gísli Marteinn hjá RÚV – upplýsingaóreiða og falsfréttir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Gísli Marteinn hjá RÚV – upplýsingaóreiða og falsfréttir
Gísli Marteinn hjá RÚV – upplýsingaóreiða og falsfréttir Fréttin14. september 2026Fjölmiðlar, Innlent, RÚV, ViðtalLeave a Comment Gísli Marteinn Baldu...
Panettiere lést eftir að hafa tekið oxy blandað fentanýl
📅 14.09.2026 👁️ 1
Panettiere lést eftir að hafa tekið oxy blandað fentanýl
Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin-pillu með íblönduðu fentanýli. Bandaríski fjölmiðillinn TMZ hefur þetta frá ...
Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin blandað fentanýli
📅 14.09.2026 👁️ 1
Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin blandað fentanýli
Bandaríska leikkonan Hayden Panettiere lést eftir að hafa tekið oxycontin-töflu með íblönduðu fentanýli. Bandaríski fjölmiðillinn TMZ hefur þetta efti...
Íþrótta­félög fá að beina frekari upp­lýsingum að börnum - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Íþrótta­félög fá að beina frekari upp­lýsingum að börnum - Vísir
Borgarráð samþykkti breytingar á reglum borgarinnar um kynningar, auglýsingar og gjafir í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Fel...
Þörf á samstilltu átaki og að rjúfa vítahringinn á íslenskum vinnumarkaði
📅 14.09.2026 👁️ 1
Þörf á samstilltu átaki og að rjúfa vítahringinn á íslenskum vinnumarkaði
Rjúfa þarf vítahring á vinnumarkaði á Íslandi og til þess þarf öguð vinnubrögð, að mati formanns Samtaka atvinnulífsins. Halda þurfi aftur af verðhækk...
Vilja verða jafningjar Eng­lendinga - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Vilja verða jafningjar Eng­lendinga - Vísir
Í yfirlýsingunni sem þau skrifuðu undir í dag segir að ríkjunum þremur, Írlandi, Skotlandi og Wales sé nú í fyrsta sinn öllum stýrt af fólki sem hefur...
No collusion in Robert Hamill killing but police inquiry flawed, inquiry finds
📅 14.09.2026 👁️ 1
No collusion in Robert Hamill killing but police inquiry flawed, inquiry finds
Robert Hamill died after he was beaten by loyalists in Portadown, County Armagh.
Member of UK armed forces dies in road traffic incident in Ukraine
📅 14.09.2026 👁️ 1
Member of UK armed forces dies in road traffic incident in Ukraine
The incident is not the result of hostile action, the BBC understands.
Hakkarar tóku niður vef norska stórþingsins
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hakkarar tóku niður vef norska stórþingsins
Tölvuhakkarahópurinn Server Killers, sem hefur tengsl við Rússland, segist hafa valdið því að vefur norska stórþingsins liggur niðri. Hakkararnir segj...
Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum - Vísir
Hlutfall barna sem búa við varanlega fátækt hefur einnig lækkað lítillega og var 5,1 prósent árið 2024. Mikill munur er á stöðu barna eftir fjölskyldu...
Wildfire breaks out in Gran Canaria as roads are closed
📅 14.09.2026 👁️ 1
Wildfire breaks out in Gran Canaria as roads are closed
A serious wildfire has broken out in Gran Canaria near Cazadores in Telde, prompting the deployment of emergency crews and aerial firefighting resourc...
AirBaltic í greiðslustöðvun
📅 14.09.2026 👁️ 1
AirBaltic í greiðslustöðvun
Lettneska ríkisflugfélagið AirBaltic, hefur óskað eftir greiðslustöðvun á meðan fyrirtækið freistar þess að ná tökum á skuldum. Í tilkynningu frá fyri...
Fyrstu ráðherrar Skotlands, Wales og N-Írlands segja tíma Westminster á enda
📅 14.09.2026 👁️ 1
Fyrstu ráðherrar Skotlands, Wales og N-Írlands segja tíma Westminster á enda
Fyrstu ráðherrar Skotlands, Norður-Írlands og Wales undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um sjálfsákvörðunarrétt þjóðanna. Í fyrsta sinn eru sjá...
Miða af­plánun á Vernd við þriðjung af þriðjungi fangelsis­dóms - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Miða af­plánun á Vernd við þriðjung af þriðjungi fangelsis­dóms - Vísir
Líkt og Vísir greindi frá í morgun hóf banamaður Bryndísar Klöru afplánun á áfangaheimilinu Vernd í byrjun september. Hann var dæmdur í átta ára fange...
Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunar­at­riðis - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunar­at­riðis - Vísir
Líkt og Vísir greindi frá í morgun hóf banamaður Bryndísar Klöru afplánun á áfangaheimilinu Vernd í byrjun september. Hann var dæmdur í átta ára fange...
Björn opnar sig um stóra sundlaugarmálið: „Djöfull eiga þeir eftir að hlæja að mér“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Björn opnar sig um stóra sundlaugarmálið: „Djöfull eiga þeir eftir að hlæja að mér“
Fjölmiðlamaðurinn Björn Þorláksson segir að hann eigi sér fáar óskir heitari en að Íslendingar haldi áfram að búa í samfélagi sem byggir á trausti en ...
Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vín­veislu Inn­nes - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vín­veislu Inn­nes - Vísir
Hátt í þúsund gestir lögðu leið sína á sýninguna þar sem hægt var að smakka allt frá villibráð, spænskum tapasréttum og ítölskum eftirréttum yfir í ví...
Mikilvægt að fara í saumana á „kreppu hjá SÁÁ“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Mikilvægt að fara í saumana á „kreppu hjá SÁÁ“
Rótin – Félag um velferð og vellíðan kvenna vill að embætti landlæknis geri ítarlega skoðun á heilbrigðisþjónustu SÁÁ vegna þess sem það kallar kerfis...
Ein pilla dró Panettiere til dauða - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Ein pilla dró Panettiere til dauða - Vísir
TMZ greinir frá þessu.  Panettiere, sem var 36 ára þegar hún lést, var þekktust fyrir hlutverk sín í sjónvarpsþáttunum Heroes og Nashville og fyrir kv...
Ríkið greiddi 107.000 krónur með hverjum farþega árið 2024
📅 14.09.2026 👁️ 1
Ríkið greiddi 107.000 krónur með hverjum farþega árið 2024
Langnesingar eru óánægðir með samráðsleysi Vegagerðarinnar þegar kemur að útboði á áætlunarflugi frá Akureyri til Vopnafjarðar og Þórshafnar. Til sten...
Andy Burnham cancels engagements after death of father
📅 14.09.2026 👁️ 1
Andy Burnham cancels engagements after death of father
The PM is understood to have cancelled engagements for Monday and Tuesday following the death of his father Roy.
Stjórnar­myndunar­maraþon fram­undan í Sví­þjóð - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Stjórnar­myndunar­maraþon fram­undan í Sví­þjóð - Vísir
Þegar búið er að telja 94 prósent atkvæða eftir þingkosningarnar í Svíþjóð eru stjórnarandstöðuflokkarnir með 176 þingmenn en ríkisstjórn hægri flokka...
„Ég ætla að sofa heila ei­lífð núna“ - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
„Ég ætla að sofa heila ei­lífð núna“ - Vísir
Tónleikaferðalagið bar heitið A Matter of Time í höfuðið á breiðskífu sem Laufey gaf út í ágúst 2025. Lög plötunnar hafa fengið mörg hundruð milljón h...
London musical cancelled after Ariana Grande and Jonathan Bailey pull out
📅 14.09.2026 👁️ 1
London musical cancelled after Ariana Grande and Jonathan Bailey pull out
Sunday in the Park With George was supposed to make its debut next year at the Barbican.
Steep rise in young UK nationals detained for smuggling drugs from Asia
📅 14.09.2026 👁️ 1
Steep rise in young UK nationals detained for smuggling drugs from Asia
Hundreds of Britons have been detained in Thailand on suspicion of attempting to smuggle cannabis to the UK.
„Það þarf að hreinsa að­eins loftið“ - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 2
„Það þarf að hreinsa að­eins loftið“ - Vísir
Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun veittu félaginu Kaldvík AS rekstrar- og starfsleyfi til fiskeldis í Seyðisfirði á föstudaginn. Formaður Fé...